Við vörum við fölskum SMS-skilaboðum
Við vörum við fölskum SMS-skilaboðum sem send hafa verið í nafni Landsbankans. Í skilaboðunum eru viðtakendur beðnir um að staðfesta reikning sinn og ýta á hlekk inn á falsaða síðu. Ekki opna þann hlekk.
Við sendum aldrei SMS-skeyti eða tölvupóst þar sem viðtakendur eru beðnir um að fara inn í netbankann sinn og skrá sig inn, t.d. til að breyta upplýsingum.
Ef þú hefur opnað hlekkinn og skráð þig inn á fölsku síðuna þá eru svikararnir komnir með aðgangsupplýsingarnar þínar. Þá er mikilvægt að þú skráir þig inn með venjulegum hætti, í appinu eða með því að fara á vef bankans og skrá þig inn í netbankann, og breytir lykilorðinu strax.
Þú skalt líka hafa samband við okkur, með því að hringja í s. 410 4000, senda okkur póst á landsbankinn@landsbankinn.is eða í gegnum netspjallið á www.landsbankinn.is.