Landsbankinn fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum

Það eru Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Nasdaq OMX Iceland og Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands sem standa að viðurkenningunni.
Lilja B. Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, tók á móti viðurkenningunni sem var afhent á ráðstefnu um góða stjórnarhætti í hátíðarsal Háskóla Íslands.
Viðurkenningin byggir á úttekt Deloitte ehf. á stjórnarháttum bankans. Úttektin tekur mið af Leiðbeiningum um góða stjórnarhætti sem eru gefnar út af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands er umsjónaraðili viðurkenningarferlisins.
Landsbankinn hlaut viðurkenninguna fyrst árið 2014 og hefur hlotið hana árlega síðan. Viðurkenningin er fyrst og fremst veitt til þess að ýta undir umræður og aðgerðir sem efla góða stjórnarhætti.

Oddziały banku są otwarte, ale uprzejmie prosimy o umówienie się na wizytę

Gott ár hjá Íslenska lífeyrissjóðnum

Við opnum útibúin en biðjum þig um að panta tíma

Úthlutun Tómstundastyrkja Klassa

Vaxtagreiðslur og millifærslur um áramótin

Nýr vefur Landsbankans kominn í loftið

Landsbankinn veitir 15 milljónir króna í samfélagsstyrki

Umsóknarfrestur um lánatryggingu úr Svanna lánatryggingasjóði kvenna

Gjafakortasjálfsalar í Mjódd og Vesturbæ opnir allan sólarhringinn
