Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn ann­ast hluta­fjárút­boð í Heima­völl­um 7.-8. maí

Landsbankinn hefur umsjón með hlutafjárútboði í Heimavöllum leigufélagi sem stendur frá kl. 10.00 mánudaginn 7. maí til kl. 16.00 þriðjudaginn 8. maí. Í útboðinu verða boðnir til sölu 750.000.000 nýir hlutir í félaginu.
4. maí 2018

Landsbankinn hefur umsjón með hlutafjárútboði í Heimavöllum leigufélagi. Útboðið hefst kl. 10.00 mánudaginn 7. maí og lýkur kl. 16.00 þriðjudaginn 8. maí.

Í útboðinu verða boðnir til sölu 750.000.000 nýir hlutir í Heimavöllum sem er stærsta leigufélag landsins. Gefi eftirspurn tilefni til hefur félagið heimild til að fjölga seldum hlutum í útboðinu þannig að þeir nemi samtals allt að 900.000.000. Hlutafjáraukningin nemur 6,7%-7,9% af hlutafé Heimavalla að útboði loknu, allt eftir því hvort heimild til að fjölga seldum hlutum verður nýtt eða ekki.

Markmiðið með útboðinu er að fjölga hluthöfum í Heimavöllum þannig að félagið uppfylli skilyrði Aðalmarkaðar Kauphallar Íslands varðandi dreifingu hlutafjár og fjölda hluthafa. Stefnt er að því að hlutabréf í Heimavöllum verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar þann 24. maí nk.

Nánari upplýsingar um útboðið

Þú gætir einnig haft áhuga á
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.