Kaup Lands­bank­ans á eig­in hlut­um á þriðja end­ur­kaupa­tíma­bili

Eins og fram kemur í tilkynningu Landsbankans frá 15. september 2016 hefur bankaráð Landsbankans ákveðið að nýta heimild til kaupa á eigin hlutum í bankanum sem veitt var á aðalfundi bankans 14. apríl 2016. Kaupin, sem fara fram á þremur endurkaupatímabilum, munu nema að hámarki samtals 480 milljónum hluta eða sem nemur 2% af útgefnu hlutafé.
13. febrúar 2017 - Landsbankinn

Þann 30. september 2016 birti Landsbankinn tilkynningu um kaup á eigin hlutum á fyrsta endurkaupatímabilinu sem stóð yfir frá 19. september 2016 til og með 30. september 2016. Þann 9. desember 2016 birti Landsbankinn tilkynningu um kaup á eigin hlutum á öðru endurkaupatímabilinu sem stóð yfir frá 31. október 2016 til og með 9. desember 2016.

Þriðja endurkaupatímabil stendur yfir frá 13. febrúar 2017 til og með 24. febrúar 2017.

Þeir hluthafar sem ákveða að nýta sér boð Landsbankans um að kaupa hluti af hluthöfum á þriðja endurkaupatímabili skulu senda bankanum tilkynningu þar að lútandi og er eyðublað fyrir tilkynninguna aðgengilegt á vef bankans. Þá má finna á vef bankans leiðbeiningar til hluthafa sem vilja selja hluti á þriðja endurkaupatímabili. Hluthöfum verður ekki sent bréf vegna boðs bankans um kaup á hlutum á þriðja endurkaupatímabili.

Tilkynningar verða afgreiddar í þeirri röð sem þær berast bankanum þar til framangreindu hámarki (480 milljónir hluta) verður náð. Verði hámarkinu náð verða frekari tilkynningar því ekki afgreiddar.

Samkvæmt ársuppgjöri Landsbankans fyrir árið 2016 er eigið fé sem tilheyrir hluthöfum bankans 251.204.319.726 krónur og útistandandi hlutir 23.648.168.510. Í samræmi við framangreint býðst Landsbankinn því til að kaupa hvern hlut á genginu 10,6226 á þriðja endurkaupatímabili.

Að loknu þriðja endurkaupatímabili mun Landsbankinn upplýsa um heildarfjölda seldra hluta og hvort bankastjóri eða framkvæmdastjórar hjá bankanum hafi selt hluti í bankanum.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Austurbakki
7. júní 2024
S&P segir kaup Landsbankans á TM fjölga tekjustoðum og hafa hófleg áhrif á eiginfjárstöðu
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings (S&P) telur að kaup Landsbankans á TM tryggingum hf. (TM) skapi tækifæri fyrir bankann til að festa sig í sessi á íslenskum tryggingamarkaði, breikka þjónustuframboð til viðskiptavina og auka fjölbreytni í tekjustoðum bankans til framtíðar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem S&P birti 5. júní 2024.
Austurbakki
30. maí 2024
Samningur um kaup Landsbankans á TM undirritaður
Samningur um kaup Landsbankans á TM tryggingum hf. af Kviku banka var undirritaður í dag.
Austurbakki
2. maí 2024
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2024
Hagnaður Landsbankans á fyrstu þremur mánuðum ársins 2024 nam 7,2 milljörðum króna eftir skatta. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu var 9,3% samanborið við 11,1% á sama tímabili árið áður.
Austurbakki
19. apríl 2024
Niðurstöður aðalfundar Landsbankans 2024
Aðalfundur Landsbankans, sem haldinn var 19. apríl 2024, samþykkti að greiða 16.535 milljónir króna í arð til hluthafa.
Austurbakki
4. apríl 2024
S&P hækkar lánshæfismat Landsbankans í BBB+
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði hækkað lánshæfismat Landsbankans. Hækkunin nemur einu þrepi og er lánshæfismatið því BBB+ með stöðugum horfum.
Austurbakki
27. mars 2024
Aðalfundur Landsbankans 2024 - fundarboð
Aðalfundur Landsbankans verður haldinn föstudaginn 19. apríl 2024 kl. 16.00 í Reykjastræti 6, Reykjavík.
Austurbakki
22. mars 2024
Bankasýslan var upplýst um áform Landsbankans um að kaupa TM
Bankaráð Landsbankans hefur svarað bréfi Bankasýslu ríkisins frá 18. mars sl. þar sem óskað er eftir tilteknum upplýsingum um kaup bankans á TM tryggingum.
Austurbakki
19. mars 2024
Aðalfundi Landsbankans frestað til 19. apríl
Á fundi bankaráðs Landsbankans þann 19. mars 2024 var ákveðið að fresta aðalfundi bankans, sem vera átti miðvikudaginn 20. mars 2024. Að höfðu samráði við Bankasýslu ríkisins var ákveðið að halda aðalfundinn föstudaginn 19. apríl.
Austurbakki
17. mars 2024
Tilboð Landsbankans í TM samþykkt
Landsbankinn og Kvika banki hafa komist að samkomulagi um að hefja einkaviðræður um kaup Landsbankans á TM tryggingum hf. („TM“) á grundvelli kauptilboðs sem bankinn lagði fram í allt hlutafé félagsins þann 15. mars sl. Möguleg kaup eru m.a. háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlitsins og fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.
Austurbakki
7. mars 2024
Aðalfundur Landsbankans 2024
Aðalfundur Landsbankans verður haldinn miðvikudaginn 20. mars 2024 kl. 16.00 í Reykjastræti 6, Reykjavík.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur