Markaðsumræðan: Þjóðhagsspá Hagfræðideildar og fasteignamarkaðurinn
Í þættinum er rætt við Unu Jónsdóttur, sérfræðing í Hagfræðideild Landsbankans um fasteignamarkaðinn á Íslandi, stöðu og horfur. Einnig fræðir Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar, okkur um þjóðhagsspá Hagfræðideildar sem birtist miðvikudaginn 30. október.

4. nóvember 2019 - Hagfræðideild
Um Markaðsumræðuna, hlaðvarp Hagfræðideildar Landsbankans
Markaðsumræðan er vettvangur fyrir verðbréfagreinendur í Hagfræðideild Landsbankans til að koma á framfæri skoðunum sínum og greiningum á félögum á hlutabréfamarkaði og hvernig nýjustu vendingar á mörkuðum og í hagkerfinu geta haft áhrif á félögin. Umfjöllunin á að vera á mannamáli og er tilgangurinn að auka áhuga og umræðu um hlutabréfamarkaði.
Þú gætir einnig haft áhuga á

19. mars 2021
Efnahagshorfur, vaxtahækkanir í BNA og aukinn áhugi á hlutabréfum
Í þættinum er farið yfir þróunina á innlendum fjármálamörkuðum í stuttu máli. Rætt er við dr. Daníel Svavarsson og Gústaf Steingrímsson frá Hagfræðideild Landsbankans, um horfur í þjóðarbúskapnum á þessu ári. Einnig er farið yfir hvernig árinu 2020 lauk miðað við upphaflegar spár. Við ræðum hækkandi vexti í Bandaríkjunum og hugsanleg áhrif á alþjóðavettvangi. Að lokum skoðum við aukinn áhuga almennings á fjárfestingu í hlutabréfum.

19. feb. 2021
Hvernig á að byrja að spara og fjárfesta?
Fjárfestingar og sparnaður eru umræðuefni þáttarins. Hvenær og hvernig er best að byrja að spara eða fjárfesta? Hvar liggja tækifærin? Hvernig er hægt að fá betri ávöxtun og meta áhættuna?

4. feb. 2021
Salan á Íslandsbanka, Gamestop og verðbréfamarkaðurinn
Í þættinum verður farið yfir sölu ríkisins á Íslandsbanka og muninn á stóru bönkunum þremur. Auk þess er farið yfir þróun mála í Bandaríkjum hvað varðar Gamestop og svipuð fyrirtæki. Þórunn Björk Steingrímsdóttir verðbréfamiðlari hjá Landsbankanum kíkir í heimsókn og ræðir um markaðinn og hennar vegferð í heim verðbréfamiðlara.

14. jan. 2021
Af hverju hækkuðu hlutabréf og fasteignir í heimsfaraldri?
Í þættinum er fjallað um hlutabréfa-, skuldabréfa og gjaldeyrismarkaðinn á árinu 2020. Rætt er um það sem mörgum kann að koma spánskt fyrir sjónir, að hlutabréfamarkaðir hækkuðu í miðjum heimsfaraldri. Una Jónsdóttir, sérfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans og einn helsti sérfræðingur okkar um fasteignamarkaðinn ræðir þróunina á þeim markaði á árinu 2020 og horfurnar.

17. des. 2020
Fjármálamarkaðir, vinnumarkaðurinn og ríkisfjármál
Í þættinum er farið yfir þróunina á innlendum fjármálamörkuðum. Einnig er farið yfir þróunina í nýskráningum í Bandaríkjanum þar sem sérstaklega er litið til eins fyrirtækis með íslenska tengingu. Auk þess er rætt við Ara Skúlason frá Hagfræðideild Landsbankans um stöðuna á íslenska vinnumarkaðnum og ríkisfjármál.

2. des. 2020
Krónan, gjaldeyrismarkaðurinn og vaxtaákvörðun Seðlabankans
Í þættinum er farið yfir þróunina á innlendum fjármálamörkuðum í nóvember, nýjustu verðbólgutölur frá Hagstofunni, hagvaxtartölur á þriðja fjórðungi og síðustu vaxtaákvörðun Seðlabankans. Að auki er rætt við Stefni Kristjánsson hjá gjaldeyrisviðskiptum Landsbankans um gjaldeyrismarkaðinn og þróunina á íslensku krónunni að undanförnu.

27. nóv. 2020
Sjálfbærni og græn fjármál
Í þættinum er fjallað um sjálfbær fjármál frá ýmsum hliðum. Hvað eru græn skuldabréf og regnbogafjármögnun? Hver eru raunveruleg umhverfisáhrif fjármálafyrirtækja og hver er þróunin í ábyrgum fjárfestingum?

21. okt. 2020
Hagspá Landsbankans og fasteignamarkaðurinn
Í þættinum er rætt við Daníel Svavarsson, forstöðumann Hagfræðideildar og Unu Jónsdóttur sérfræðing, um nýja hagspá Landsbankans. Farið er yfir stöðu og horfur í efnahagsmálum og sérstaklega rætt um fasteignamarkaðinn. Ný þjóðhags- og verðbólguspá Hagfræðideildar Landsbankans fyrir árin 2020 -2023 var birt þann 20. október.

20. okt. 2020
Ungir fjárfestar
Hvernig byrjar maður að fjárfesta og afhverju ætti ungt fólk að hugsa um sparnað eða fjárfestingar?

15. maí 2020
Markaðsumræðan: Efnahagsáfall aldarinnar - fjallað um nýja hagspá Landsbankans
Arnar Ingi Jónsson, Daníel Svavarsson og Gústaf Steingrímsson fjalla um nýja hagspá Hagfræðideildar Landsbankans sem gefin var út 15. maí. Samkvæmt spánni mun landsframleiðsla dragast saman um tæplega 9% á árinu 2020 en við taki hægur bati. Mikil óvissa sé þó um efnahagshorfur.