Verðbólga jókst úr 5,3% í 5,6% í ágúst og mælist nú yfir 5% áttunda mánuðinn í röð. Áhrif sólmyrkvans á verðlag reyndust hóflegri en búist var við og verðhækkanir voru á breiðari grunni. Það er einnig ljóst að forsenduákvæði kjarasamninga virkjast við þessa mælingu.
Í þættinum var meðal annars fjallað um hvað heldur verðbólgunni uppi, stöðu kjarasamninga og hvers vegna vextir voru hækkaðir þrátt fyrir skýr merki um kólnun í hagkerfinu. Þá var rætt um þróun húsnæðismarkaðarins og hvenær verðbólga og vextir gætu byrjað að lækka.
Una Jónsdóttir og Hjalti Óskarsson, hagfræðingar hjá Greiningardeild Landsbankans, ræða stöðu efnahagsmála og framtíðarhorfurnar við Kristínu Gunnarsdóttur í nýjasta þætti Umræðunnar.
Hlusta og gerast áskrifandi að hlaðvarpinu á streymisveitu
Um hlaðvarpið
Umræðan: hlaðvarp er vettvangur þar sem sérfræðingar í Landsbankanum ræða um efnahagsmál og annað sem tengist starfsemi bankans frá ýmsum hliðum og á mannamáli. Tilgangurinn er að auka áhuga og umræðu um efnahagsmál og bankastarfsemi.










