Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Hag­sjá: Veru­leg­ar út­flutn­ings­tekj­ur í húfi verði eng­in loðnu­veiði

Í fyrsta sinn í áratugi stefnir í að engin loðna verði veidd hér við land.
21. febrúar 2019

Samantekt

Hafrannsóknarstofnun hefur ekki gefið út neinn upphafskvóta á loðnu á þessari vertíð og stefnir því í að engar loðnuveiðar verði heimilaðar. Verandi næst mikilvægasta útflutningsfisktegundin á eftir þorskinum munu áhrif þess verða allnokkur á landsframleiðslu og þar með á hagvöxt. Útflutningsverðmæti loðnu nam 17,8 mö.kr. í fyrra. Á þriðja ársfjórðungi síðasta árs nam landsframleiðsla síðustu fjögurra ársfjórðunga 2.766 mö.kr. Er því um að ræða um 0,6% af landsframleiðslu sem þjóðarbúið verður af, að öllu öðru óbreyttu.

Lesa Hagsjána í heild

Hagsjá: Verulegar útflutningstekjur í húfi verði engin loðnuveiði (PDF)

Þú gætir einnig haft áhuga á
31. ágúst 2026
Ál og fiskur skýra samdrátt á öðrum fjórðungi
Landsframleiðsla dróst saman um 1,1% á milli ára á öðrum ársfjórðungi. Samdráttur í vöruútflutningi, sér í lagi áli og sjávarafurðum skýrir samdráttinn að mestu. Minni vöxtur var í einkaneyslu. Fjárfesting, önnur en atvinnuvega, dróst saman.
Vikubyrjun
31. ágúst 2026
Vikubyrjun 31. ágúst 2026
Verðbólga mældist 5,6% í ágúst. Samkvæmt VSK-skýrslum jókst velta í helstu útflutningsgreinum í maí og júní, að ferðaþjónustu undanskilinni. Mörg félög í kauphöllinni birtu uppgjör í síðustu viku. Í dag birtir Hagstofan þjóðhagsreikninga fyrir annan ársfjórðung.
27. ágúst 2026
Verðbólga eykst í 5,6% - hækkanir á breiðum grunni
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,20% á milli mánaða í ágúst og verðbólga hækkar því úr 5,3% í 5,6%. Við spáðum 5,5% verðbólgu í ágúst. Áhrif sólmyrkvans á verðmælingar í mánuðinum voru hóflegri en við höfðum spáð. Verðhækkanir í mánuðinum voru því á breiðari grunni en við gerðum ráð fyrir í spánni. Það er óheppileg þróun, haldi hún áfram.
26. ágúst 2026
Velta eykst í útflutningsgreinum en innlend eftirspurn kólnar
Velta í flestum útflutningsreinum jókst í maí og júní að ferðaþjónustu undanskilinni, samkvæmt nýjum VSK-skýrslum. Aukna veltu útflutningsgreina má að miklu leyti rekja til hagfelldrar þróunar á heimsmarkaðsverði frekar en meiri framleiðslu. Á sama tíma sjást merki um kólnun í innlenda hagkerfinu, einkum í greinum sem reiða sig meira á innlenda eftirspurn.
Vikubyrjun
24. ágúst 2026
Vikubyrjun 24. ágúst 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku, eins og við spáðum. Á fimmtudag birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir ágúst, en við spáum því að verðbólga hækki í 5,5%.
21. ágúst 2026
Íbúðaverð stendur nánast í stað
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í júlí. Árshækkun vísitölunnar mælist nú 1,6%, hefur ekki mælst lægri í þrjú ár og er töluvert minni en hækkun á almennu verðlagi. Raunverð íbúða hefur lækkað um 3% á milli ára. Umsvif á íbúðamarkaði hafa einnig dregist saman og velta það sem af er ári hefur verið töluvert minni en á sama tímabili í fyrra.
Stýrivextir
19. ágúst 2026
Vextir hækkaðir en mildari tónn
Peningastefnunefnd hækkaði meginvexti um 0,25 prósentustig þriðja fundinn í röð og standa þeir nú í 8%. Hægt hefur á efnahagsumsvifum og vísbendingar eru um að undirliggjandi verðbólga sé tekin að hjaðna að mati nefndarinnar. Tónninn var því mun mildari en á síðustu tveimur fundum.
18. ágúst 2026
Sífellt stærri hluti neyslu Íslendinga fer fram erlendis
Kortavelta Íslendinga, að teknu tillit til verðlags og gengis, jókst lítillega í júlí. Íslendingar eyddu þó minna innanlands en í fyrra en kortavelta erlendis jókst. Aldrei hefur hærra hlutfall af kortaveltu Íslendinga farið fram erlendis.
Vikubyrjun
17. ágúst 2026
Vikubyrjun 17. ágúst 2026
Á miðvikudag tilkynnir Seðlabankinn um vaxtaákvörðun og við spáum því að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig. Um 3,1% færri ferðamenn komu til landsins í júlí en í sama mánuði í fyrra. Utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði aftur á móti á milli ára í fyrsta sinn á árinu. Skráð atvinnuleysi mældist 4,0% í júlí.
Stýrivextir
13. ágúst 2026
Spáum vaxtahækkun í næstu viku
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Verðbólga hefur reynst þrálát og verðbólguhorfur versnað. Á sama tíma hefur hagkerfið sýnt merki um kólnun, en þau eru að okkar mati ekki nægilega skýr til að koma í veg fyrir vaxtahækkun.