Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Torfærutækja­trygging

Torfærutækja­trygging

Góð trygg­ing á tor­færu­tækj­um læt­ur öll­um líða bet­ur og hægt er að hafa slysa­trygg­ingu innifalda.

Vernd við frístundirnar

Hægt er að tryggja torfærutæki á borð við fjórhjól, vélsleða og torfæruhjól sem ekki eiga heima í almennri umferð. Um er að ræða ábyrgðartryggingu sem tryggir þig fyrir tjóni gagnvart þriðja aðila og valkvæða slysatryggingu sem tryggir ökumann torfærutækisins og þig sem eiganda ef þú ert farþegi.

Slysatryggingin hentar eigendum torfærutækja sem vilja tryggja alla ökumenn sem stjórna tækjunum sama hvort það á við um vinahópinn eða í þeim tilfellum þar sem torfærutækið er notað sem atvinnutæki. Undantekning frá þessu er í tilviki torfæruhjóla þar sem tryggingin nær aðeins til þín og maka þíns.

  • Tryggingunni má þrepaskipta eftir alvarleika tjóna og stýrast iðgjöld af því hve mikla vernd þú kýst.
Tryggingarnar eru veittar af TM tryggingum hf. (TM). Landsbankinn hf. er skráður vátryggingaumboðsmaður hjá TM samkvæmt lögum nr. 62/2019 og annast dreifingu og sölu trygginganna.

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.