Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Rafhjóla­trygging

Reiðhjól

Rafhjóla­trygging

Nýir sam­göngu­mát­ar kalla á nýj­ar teg­und­ir trygg­inga. Það er ein­falt og þægi­legt að tryggja raf­hjól­ið.

Rafhjólatrygging er sérsniðin trygging fyrir rafmagnsreiðhjól, rafmagnshlaupahjól, rafmagnsvespur og rafdrifna hjólastóla. Hún samanstendur af þremur mögulegum liðum: munatryggingu, slysatryggingu og ábyrgðartryggingu.

  • Allir liðirnir eru valkvæðir þannig að þú getir valið það sem hentar best.
  • Settu trygginguna saman eins og þér hentar best með aðstoð rafræns ráðgjafa. Þá getur þú séð strax hvað tryggingin kostar.
  • Að því loknu klárar þú ferlið í TM appinu með því að taka myndir af hjólinu. Allt er klappað og klárt á örfáum mínútum.

Hvað bætir tryggingin?

  • Tjón á rafhjólinu við hjólreiðar.
  • Skaðabætur ef þú, maki þinn eða börn yfir 12 ára aldri skapa sér bótaábyrgð samkvæmt íslenskum lögum við hjólreiðar.
  • Slys sem þú, maki eða börn yfir 12 ára aldri verða fyrir á rafhjólinu.
  • Læknisaðstoð og endurhæfing eftir hjólaslys.
  • Viðgerðir á tönnum sem brotna eða laskast.

Hvað bætir tryggingin ekki?

  • Skemmdir vegna eðlilegrar notkunar, slits eða galla.
  • Ef hjólið er skilið eftir ólæst á almannafæri er þjófnaður ekki bættur.
  • Tjón á hjóli eða aukabúnaði sem þú ert með að láni eða í leigu.
  • Meiðsli eða líkamstjón af völdum vélknúins ökutækis.
  • Slys og tjón ef átt hefur verið við hraðatakmörkun.

Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?

  • Tryggingin gildir ekki í keppnum eða æfingum fyrir keppni.
  • Tjón sem rakin eru til þess að átt hefur verið við hraðatakmarkanir rafhjólsins eru ekki bætt.

Algengar spurningar

Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.

Nánari upplýsingar

Tryggingarnar eru veittar af TM tryggingum hf. (TM). Landsbankinn hf. er skráður vátryggingaumboðsmaður hjá TM samkvæmt lögum nr. 62/2019 og annast dreifingu og sölu trygginganna.

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.