Tryggingin gildir á Íslandi og í öðrum aðildarríkjum EES, aðildarríkjum að stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu og Færeyjum í allt að 90 daga.
Kaskótrygging
Valkvæð en veigamikil vernd
Með kaskótryggingu færðu bættar skemmdir á bílnum og við mælum með henni fyrir flesta bíla yngri en 6 ára.
Tryggingin bætir skemmdir sem bíllinn kann að verða fyrir, þar með talið skemmdir sem verða á rafhlöðu og undirvagni bílsins við akstur.
- Kaskótrygging er valkvæð trygging sem bætir einnig skemmdir á aukahlutum við tjón.
Hvað bætir tryggingin?
- Eigið tjón á bifreið vegna áreksturs við aðra bifreið eða kyrrstæðan hlut, veltu, útafakstur, grjóthrun og fleira.
- Skemmdir á undirvagni ökutækis, þ.m.t. rafhlöðu, hjólbörðum og felgum, er hljótast af því að ökutækið rekst niður í akstri, ekið er í holu, grjót á vegi eða þegar laust grjót hrekkur upp undir ökutækið.
- Tjón sem verður á bifreiðinni vegna þjófnaðar, innbrots eða skemmdarverka.
- Tjón á fram-, aftur- og hliðarrúðu.
- Greiðir bílaleigubíl í allt að fimm daga ef bíllinn verður óökufær vegna tjóns.
Hvað bætir tryggingin ekki?
- Tjón sem stafar af sandfoki eða öðrum náttúruhamförum en þeim sem falla undir 4. og 6. gr. skilmála.
- Skemmdir á undirvagni, hjólbörðum og felgum vegna aksturs á F-merktum vegum eða slóðum.
- Þjófnaður eða skemmdir á aukabúnaði, t.d. hjólkoppum og ljósabúnaði.
- Þjófnað og skemmdaverk erlendis
Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?
- Tryggingin gildir ekki ef tjón verður í kappakstri, aksturskeppni eða reynsluakstri.
- Tryggingin gildir ekki ef ekið er annars staðar en á vegum landsins nema ökutækið sé sérstaklega útbúið til þess.
Algengar spurningar
Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.
