Allir liðir tryggingarinnar gilda á Íslandi og á ferðalagi hvar sem er í allt að 92 daga talið frá brottfarardegi að undanskilinni ábyrgðartryggingunni sem gildir á Íslandi og á ferðalagi í Evrópu í allt að 92 daga.
Hjólreiðatrygging
Hjólreiðatrygging
Hjólreiðatryggingin tryggir hjólið þitt fyrir skemmdum og þjófnaði og þig fyrir slysum og sjúkrakostnaði.
Tryggingin samanstendur af fjórum mögulegum liðum: munatryggingu, ábyrgðartryggingu, slysatryggingu og sjúkrakostnaðartryggingu erlendis.
- Allir liðirnir eru valkvæðar svo þú getur valið það sem hentar best.
- Tryggingin gildir á æfingum og í keppnum, bæði á Íslandi og erlendis.
Hvað bætir tryggingin?
- Tjón á hjóli og tryggðum aukabúnaði vegna skyndilegra og óvæntra atvika.
- Skaðabætur ef þú skapar þér bótaábyrgð samkvæmt íslenskum lögum við hjólreiðar.
- Varanlegt líkamstjón vegna hjólreiðaslyss.
- Læknisaðstoð og endurhæfing eftir hjólreiðaslys.
- Tannbrot.
- Sjúkrakostnaður vegna hjólreiðaslyss erlendis.
Hvað bætir tryggingin ekki?
- Skemmdir vegna eðlilegrar notkunar, slits eða galla.
- Ef hjólið er skilið eftir ólæst á almannafæri er þjófnaður ekki bættur.
- Tjón á hjóli eða aukabúnaði sem þú ert með að láni eða í leigu.
- Meiðsli eða líkamstjón af völdum vélknúins ökutækis.
Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?
- Tryggingin gildir eingöngu fyrir reiðhjól sem knúið er áfram af notanda þess með stig- eða sveifarbúnaði.
Algengar spurningar
Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.
