Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Ferðavagna­trygging

Ferðavagna­trygging

Ekki láta neitt trufla þig á ferða­lag­inu. Kaskó­tryggð­ur ferða­vagn er frá­bær ferða­fé­lagi.

Þú getur andað fersku sveitaloftinu að þér áhyggjulaus vegna þess að með kaskótryggingu ferðavagna eru skemmdir á bæði vagninum og fylgihlutum bættar, sama hvort þær koma til vegna áreksturs, innbrots eða óhapps.

  • Kaskótrygging ferðavagna bætir skemmdir á ferðavögnum og aukahlutum.
  • Ferðavagnar eru tjaldvagnar, fellihýsi, pallahýsi og hjólhýsi.
  • Tryggingin tekur einnig til eðlilegra fylgihluta á borð við innréttingar og annan fastan búnað.

Hvað bætir tryggingin?

  • Tjón vegna: eldingar, eldsvoða, áreksturs, áaksturs, veltu, útafaksturs eða hraps, grjóthruns, snjóflóðs úr fjallshlíð, skriðufalls, aur- eða vatnsflóðs og vatns.
  • Skemmdir á ferðavagni sé honum stolið.
  • Skemmdir af völdum óveðurs og foks.
  • Skemmdir á ferðavagni í flutningi á skipi.
  • Brot á rúðugleri.

Hvað bætir tryggingin ekki?

  • Innbú og aðrir lausir munir.
  • Tjón á hjólabúnaði og undirvagni.
  • Tjón ef ökumaður hefur ekki réttindi til að aka bílnum sem dregur ferðavagn.
  • Skemmdir þegar ökutæki er ekið í vatni eða sjó.

Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?

  • Tryggingin gildir ekki ef ferðavagn er notaður sem atvinnutæki erlendis.
  • Óheimilt er að aka með ferðavagn á svæði þar sem varað hefur verið við akstri vegna óveðurs eða akstursskilyrða.

Algengar spurningar

Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.

Nánari upplýsingar

Tryggingarnar eru veittar af TM tryggingum hf. (TM). Landsbankinn hf. er skráður vátryggingaumboðsmaður hjá TM samkvæmt lögum nr. 62/2019 og annast dreifingu og sölu trygginganna.

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.