Mik­ill vöxt­ur hjá Ís­lenska líf­eyr­is­sjóðn­um

Rekstur Íslenska lífeyrissjóðsins gekk sérlega vel á árinu 2017. Sjóðurinn hélt áfram að vaxa og sjóðsfélögum fjölgaði. Ávöxtun á árinu var góð en nafnávöxtun deilda sjóðsins var á bilinu 6,2- 6,6%.
13. apríl 2018

Hrein raunávöxtun samtryggingardeildar var 4,8%. Hrein raunávöxtun Líf I, sem er stærsta séreignardeild sjóðsins, var 4,5%. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar í Líf I sl. fimm ár er 5,5%.

Hrein eign til greiðslu lífeyris hækkar

Hrein eign til greiðslu lífeyris var 70,7 milljarðar króna í lok árs 2017 og hafði vaxið um 9,5 milljarða króna frá fyrra ári en það samsvarar 15,5% vexti á árinu.

Mikil fjölgun virkra sjóðsfélaga

Virkum sjóðsfélögum, þ.e. einstaklingum sem að jafnaði greiða mánaðarleg iðgjöld til sjóðsins, hélt áfram að fjölga og voru þeir 13.245 í árslok 2017 samanborið við 11.781 í árslok 2016. Það samsvarar 12,4% fjölgun á árinu. Í lok árs 2017 áttu 34.801 sjóðsfélagar réttindi í sjóðnum og hafði þeim fjölgað um 4.301 á árinu.

Vöxtur í iðgjöldum

Samfara fjölgun sjóðsfélaga og hækkun launa jukust iðgjöld til sjóðsins mikið. Á árinu 2017 námu iðgjöld 7,4 milljörðum króna, samanborið við 6,2 milljarða króna á árinu 2016, sem er 19,6% hækkun á milli ára.

Lífeyrisgreiðslur og greiðslur inn á lán

Lífeyrisgreiðslur á árinu 2017 námu 766 milljónum króna samanborið við 671 milljónir króna árið 2016. Á árinu 2017 fengu 3.602 sjóðfélagar greiddan viðbótarlífeyrissparnað inn á fasteignalán, samtals að fjárhæð 1,3 milljarðar króna.

Góð tryggingafræðileg staða

Tryggingafræðileg staða samtryggingardeildar batnaði frá fyrra ári en í lok árs 2017 voru heildareignir deildarinnar 0,9% hærri en heildarskuldbindingar.

Sjálfstæður lífeyrissjóður

Íslenski lífeyrissjóðurinn er sjálfstæður lífeyrissjóður sem starfar skv. lögum um lífeyrissjóði og er undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins. Fjórir af fimm stjórnarmönnum eru kosnir af sjóðsfélögum. Sjóðurinn er með rekstrarsamning við Landsbankann sem sér um daglegan rekstur sjóðsins. Framkvæmdastjóri sjóðsins er Ólafur Páll Gunnarsson og sjóðsstjóri er Pétur Pétursson.

Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn föstudaginn 27. apríl kl. 17.00 í útibúi Landsbankans að Austurstræti 11.

Ársreikningur Íslenska lífeyrissjóðsins 2017 (pdf)

Þú gætir einnig haft áhuga á
New temp image
26. apríl 2024
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins 2024
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn þriðjudaginn 21. maí 2024 kl. 16.00 í Landsbankanum Reykjastræti 6.
New temp image
19. maí 2023
Frambjóðendur í stjórnarkjöri Íslenska lífeyrissjóðsins
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 24. maí 2023 kl. 17 í útibúi Landsbankans Austurstræti 11. Samkvæmt samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins er stjórn sjóðsins skipuð fimm mönnum, öllum kosnum af sjóðfélögum. Í varastjórn eru tveir menn. Að þessu sinni verður kosið um tvo aðalmenn til þriggja ára og einn varamann til þriggja ára.
New temp image
28. apríl 2023
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 24. maí 2023 kl. 17:00 í Landsbankanum Austurstræti 11.
New temp image
11. jan. 2023
Breyting á réttindatöflum og samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur staðfest breytingar á réttindatöflum og samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins sem samþykktar voru á aukaársfundi sjóðsins þann 10. nóvember 2022. Nýjar samþykktir tóku gildi 1. janúar 2023.
New temp image
1. des. 2022
Breytingar á lögum um lífeyrissjóði og tengdum lögum sem taka gildi um áramót
Breytingar á lögum lögum um lífeyrissjóði og öðrum tengdum lagabálkum sem kunna að hafa áhrif á sjóðfélaga Íslenska lífeyrissjóðsins taka gildi um næstu áramót. Hér er yfirlit yfir helstu breytingar:
New temp image
30. nóv. 2022
Fundargerð aukaársfundar Íslenska lífeyrissjóðsins 2022
Aukaársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins var haldinn þann 10. nóvember 2022 í Landsbankanum, Austurstræti 11, Reykjavík.
New temp image
27. okt. 2022
Tillögur til breytinga á samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins
Á aukaársfundi Íslenska lífeyrissjóðsins, sem haldinn verður fimmtudaginn 10. nóvember n.k. verða meðfylgjandi tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins lagðar fram.
New temp image
19. okt. 2022
Aukaársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins 10. nóvember 2022
Stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins boðar til aukaársfundar sjóðsins fimmtudaginn 10. nóvember 2022, kl. 17 í Landsbankanum Austurstræti 11.
New temp image
14. sept. 2022
Breytingar á lögum um lífeyrissjóði
Nokkrar breytingar voru gerðar á lögum um lífeyrissjóði og öðrum tengdum lagabálkum s.l. vor. Helstu breytingar lúta að hækkun lágmarksiðgjalds í lífeyrissjóð úr 12% í 15,5%, lögfestingu á svokallaðri tilgreindri séreign, breytingum á úrræði um fyrstu kaup og skerðingum á greiðslum frá Tryggingastofnun (TR). Breytingarnar taka gildi 1. janúar 2023.
New temp image
30. maí 2022
Fundargerð ársfundar Íslenska lífeyrissjóðsins 2022
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins var haldinn þann 4. maí 2022 í Landsbankanum, Austurstræti 11, Reykjavík.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur