Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn til ráð­gjaf­ar við sölu Al­vo­gen

Hermann M. Þórisson, Friðrik Kristjánsson, Davíð Ólafsson, Jens Hilmar Wessman
28. ágúst 2026

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist ráðgjöf við sölu á öllu hlutafé í Alvogen ehf., lyfjaheildsölu sem starfar á íslenskum markaði. Það var Orbital ehf. sem festi kaup á félaginu.

Alvogen hóf starfsemi árið 2014 í kjölfar yfirtöku á lyfjafyrirtækinu Portfarma. Alvogen Iceland ehf., dótturfélag eignarhaldsfélagsins Aztiq ehf., er eigandi að öllu hlutafé í Alvogen. Félögin eru óháð starfsemi Alvogen Pharma í Bandaríkjunum.

Orbital er nýstofnað félag í eigu Horns V slhf., sérhæfðs sjóðs í rekstri Landsbréfa hf. og Silfurbergs ehf.

Frá yfirtöku Alvogen á Portfarma hefur félagið aukið vöruframboð sitt verulega. Félagið flytur í dag inn um 100 lyf og markaðssetur yfir 200 heilsutengdar vörur og lækningatæki. Starfsemin nær meðal annars til innflutnings, markaðssetningar og dreifingar samheitalyfja, lausasölulyfja og frumlyfja auk annarra heilsutengdra vara til helstu heilbrigðisstofnana og apóteka landsins.

Kaupin eru háð hefðbundnum fyrirvörum, m.a. samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og BBA//Fjeldco voru ráðgjafar seljenda við söluferlið. LOGOS veitti kaupendum lögfræðilega ráðgjöf.

Frá vinstri: Hermann M. Þórisson, framkvæmdastjóri Horns V, Friðrik Kristjánsson, eigandi og stjórnarformaður Silfurbergs, Davíð Ólafsson, stjórnarformaður Alvogen Iceland, Jens Hilmar Wessman, meðstjórnandi Alvogen Iceland.

Þú gætir einnig haft áhuga á
28. okt. 2026
Fjölmenni og líflegar umræður á hagspárfundi
Fullt hús var á Kjarval miðvikudaginn 21. október þegar Greiningardeild Landsbankans kynnti hagspá sína til ársins 2029.
23. okt. 2026
Ella Gränz ráðin mannauðsstjóri Landsbankans
Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi nýs árs.
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.