Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

NIB gef­ur út græn skulda­bréf í ís­lensk­um krón­um

Austurbakki
21. febrúar 2025

Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) seldi þann 20. febrúar 2025 skuldabréf að fjárhæð 8,5 milljarðar íslenskra króna og var þetta fyrsta útgáfa bankans á Íslandi í yfir 16 ár. Skuldabréfin eru gefin út undir umhverfisskuldabréfaumgjörð NIB. Landsbankinn annaðist sölu og kynningu á skuldabréfaútgáfunni til fjárfesta.

Skuldabréfin eru verðtryggð til sjö ára. Í tilkynningu NIB segir að um mikilvægan áfanga sé að ræða. Það sé ánægjulegt fyrir NIB að stíga aftur inn á íslenskan skuldabréfamarkað og bæta íslensku krónunni við fjölbreytt fjármögnunarform bankans. Það sé sömuleiðis ánægjulegt að vera fyrsti erlendi skuldabréfaútgefandinn á íslenskum markaði frá árinu 2008. Skuldabréfaútgáfan geri NIB kleift að þjóna betur íslenskum viðskiptavinum sem vilja fjármagna fjárfestingar sínar í íslenskum krónum.

Eyrún Anna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Eignastýringar og miðlunar Landsbankans, segir: „Við erum mjög ánægð með niðurstöðu þessarar vel heppnuðu skuldabréfasölu og með samstarfið við NIB sem ég er fullviss um að framhald verði á. Það er styrkleikamerki fyrir íslenskan fjármálamarkað að svo öflugt erlent fjármálafyrirtæki gefi á ný út skuldabréf á Íslandi eftir langa fjarveru. NIB er með lánshæfiseinkunnina AAA og góð eftirspurn í útboðinu sýnir að íslenskir fjárfestar hafa mikinn áhuga á að fá slík bréf, gefin út af NIB, inn í eignasöfnin sín.“

Nánari upplýsingar um útboðið eru í tilkynningu á vef NIB

Þú gætir einnig haft áhuga á
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.