Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Breyt­ing­ar á við­mið­um vegna nýrra íbúðalána

Austurbakki
22. nóvember 2024

Landsbankinn gerir breytingar á hámarkslánstíma nýrra verðtryggðra íbúðalána og veðhlutföllum sem gilda um verðtryggð og óverðtryggð íbúðalán.

  • Hámarkslánstími verðtryggðra íbúðalána styttist úr 30 árum í 25 ár. Fyrstu kaupendum stendur áfram til boða að taka verðtryggð íbúðalán til 30 ára.
  • Við fasteignakaup miðast grunnlán nú við 60% af kaupverði íbúðar, auk þess sem hægt er að fá viðbótarlán upp að 80% af kaupverði. Fyrstu kaupendur geta þó fengið viðbótarlán upp að 85% af kaupverði.
  • Við endurfjármögnun miðast grunnlán nú við 60% af fasteignamati auk þess sem hægt er að fá viðbótarlán upp að 70% af fasteignamati.
  • Breytingar á viðmiðum vegna veðhlutfalla hafa ekki áhrif á núverandi lántaka hjá bankanum. Viðskiptavinir sem eru nú þegar með grunnlán sem eru yfir 60% af fasteignamati geta því sem fyrr endurfjármagnað þau sem grunnlán.

 Breytingarnar taka gildi frá og með 26. nóvember 2024.

Þú gætir einnig haft áhuga á
6. nóv. 2026
Opinn kynningarfundur um hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.
10. nóvember 2026 kl. 10.00, í Hörpu.
6. nóv. 2026
Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.
Í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. („félagið“) og umsókn um töku allra hluta þess til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland, hefur félagið birt lýsingu sem dagsett er 5. nóvember 2026, sem samanstendur af samantekt, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu.
Austurbakki
29. okt. 2026
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2026
Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 nam 33,1 milljarði króna eftir skatta, samanborið við 29,5 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var 11,1 milljarður króna. Arðsemi eiginfjár var 13,3% samanborið við 12,2% á sama tímabili árið áður.
28. okt. 2026
Fjölmenni og líflegar umræður á hagspárfundi
Fullt hús var á Kjarval miðvikudaginn 21. október þegar Greiningardeild Landsbankans kynnti hagspá sína til ársins 2029.
23. okt. 2026
Ella Gränz ráðin mannauðsstjóri Landsbankans
Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi nýs árs.
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.