Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn gef­ur út hagspá til 2027

Hagspá Landsbankans
15. október 2024

Greiningardeild Landsbankans spáir því að hagkerfið standi nánast í stað á milli ára í ár og að landsframleiðsla dragist saman um 0,1%.

Þetta er mikil breyting frá síðustu árum þar sem hagvöxtur hefur verið 5-9% árlega, en þeim mikla hagvexti hefur fylgt mikil og þrálát verðbólga. Spáin gerir ráð fyrir öðrum og rólegri takti. Slaki hefur færst yfir hagkerfið sem nær andanum, verðbólga hjaðnar duglega, vextir lækka og hagkerfið fer aftur hægt og rólega af stað með um 2% hagvexti árlega næstu árin.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri hagspá Greiningardeildar Landsbankans sem nær til ársins 2027. Hagspáin verður kynnt á fundi í Hörpu sem stendur frá kl. 8.30-10.00 þriðjudaginn 15. október og er fundurinn einnig í beinu streymi á vef bankans.

Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, segir:

„Spáin er almennt nokkuð björt þrátt fyrir horfur á lítils háttar samdrætti á þessu ári. Hagkerfið er að fara í gegnum tímabæra og nauðsynlega kólnun sem getur engu að síður reynst mörgum sársaukafull. Raunvextir eru háir og gætu enn hækkað. Það þýðir að aðhaldið gæti aukist sem þrengir að heimilum og fyrirtækjum í landinu. Lækkunarferlið er aftur á móti hafið og við viljum meina að sigur í baráttunni við verðbólgu sé í augsýn. Það gæti þó tekið tíma að ná verðbólgu niður í verðbólgumarkmið og við sjáum það ekki endilega gerast á spátímanum, þó svo að verðbólgan muni lækka myndarlega.“

Þú gætir einnig haft áhuga á
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.