Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bréf skila góð­um ár­angri á fyrri hluta árs­ins

Eystra horn
19. ágúst 2024 - Landsbankinn

Landsbréf hf. hafa birt árshlutareikning fyrir fyrri hluta ársins 2024.

Helstu niðurstöður voru þessar:

  • Hagnaður Landsbréfa eftir skatta var tæpar 437 milljónir króna á fyrri hluta ársins 2024 samanborið við tæpar 483 milljónir króna fyrir sama tímabil árið áður.  
  • Hreinar rekstrartekjur námu 1.084 milljónum króna á fyrri hluta ársins samanborið við 1.182 milljónir króna fyrir sama tímabil árið áður.
  • Eigið fé í lok tímabils var 3.555 milljónir króna samanborið við 4.118 milljónir króna í árslok 2023, en félagið greiddi móðurfélagi sínu Landsbankanum 1.000 milljóna króna arðgreiðslu í maí síðastliðnum. Eiginfjárhlutfall Landsbréfa var 85,5% við lok tímabilsins.

Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa:

„Rekstur Landsbréfa gekk vel á tímabilinu og hagnaður endurspeglar traustan rekstur félagsins.  Markaðsaðstæður héldu áfram að vera krefjandi á fyrri hluta ársins, einkum á innlendum hlutabréfamarkaði. Verðbólga hefur komið hægar niður en vonir stóðu til og vaxtastig hefur haldist hátt. Það er sameiginlegt verkefni allra að stuðla að lægri verðbólgu til að tryggja að hagkerfið nái mjúkri lendingu og tryggja þannig stöðugleika til framtíðar. Ávöxtun sjóða Landsbréfa var misgóð á tímabilinu eftir tegundum sjóða en vel ásættanleg í samanburði við helstu samkeppnisaðila. Landsbréf hafa haldið áfram að treysta stöðu sína sem leiðandi sjóðastýringarfyrirtæki á Íslandi. Félagið rekur sem fyrr fjölbreytt úrval verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða auk þess sem félagið sinnir afmörkuðum eignastýringarverkefnum fyrir lífeyrissjóði og fleiri stærri fjárfesta.“

Þú gætir einnig haft áhuga á
6. nóv. 2026
Opinn kynningarfundur um hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.
10. nóvember 2026 kl. 10.00, í Hörpu.
6. nóv. 2026
Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.
Í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. („félagið“) og umsókn um töku allra hluta þess til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland, hefur félagið birt lýsingu sem dagsett er 5. nóvember 2026, sem samanstendur af samantekt, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu.
Austurbakki
29. okt. 2026
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2026
Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 nam 33,1 milljarði króna eftir skatta, samanborið við 29,5 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var 11,1 milljarður króna. Arðsemi eiginfjár var 13,3% samanborið við 12,2% á sama tímabili árið áður.
28. okt. 2026
Fjölmenni og líflegar umræður á hagspárfundi
Fullt hús var á Kjarval miðvikudaginn 21. október þegar Greiningardeild Landsbankans kynnti hagspá sína til ársins 2029.
23. okt. 2026
Ella Gränz ráðin mannauðsstjóri Landsbankans
Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi nýs árs.
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.