Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn breyt­ir vöxt­um

9. desember 2022

Vextir Landsbankans breytast frá og með 12. desember 2022. Ákvörðun um breytingarnar er tekin í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands frá 23. nóvember sl. en þá hækkaði Seðlabankinn vexti um 0,25 prósentustig. Vaxtabreytingarnar taka einnig mið af vöxtum á markaði og öðrum fjármögnunarkjörum Landsbankans. 

Helstu breytingar

Breytilegir vextir Landsbankans á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,25 prósentustig og verða 7,50%. Breytilegir vextir á verðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,25 prósentustig. Fastir vextir nýrra óverðtryggðra íbúðalána hækka um 0,10-0,15 prósentustig og fastir vextir nýrra verðtryggðra íbúðalána hækka um 0,15 prósentustig.  

Kjörvextir á óverðtryggðum og verðtryggðum útlánum hækka um 0,25 prósentustig og yfirdráttarvextir hækka um 0,25 prósentustig.

Vextir á óverðtryggðum sparireikningum hækka um 0,25 prósentustig

Vextir á óverðtryggðum sparireikningum hækka að jafnaði um 0,25 prósentustig og vextir almennra veltureikninga hækka um 0,05 prósentustig.

Ný vaxtatafla tekur gildi mánudaginn 12. desember 2022. Breytingar á vöxtum á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við tilkynningar þar að lútandi sem sendar verða viðskiptavinum í netbanka.

Við vekjum athygli á fræðslugrein á vef bankans þar sem fjallað er um áhrif vaxtahækkana á lán.

Ef lán (neytendalán eða fasteignalán til neytenda) er með breytilega vexti taka breytingarnar gildi 30 dögum eftir að tilkynnt er um breytinguna. Þetta á t.d. við um íbúðalán eða bílalán til einstaklinga sem eru á breytilegum vöxtum. Vextir lána með fasta vexti breytast ekki á meðan á fastvaxtatímanum stendur.

Þú gætir einnig haft áhuga á
23. okt. 2026
Ella Gränz ráðin mannauðsstjóri Landsbankans
Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi nýs árs.
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.