Una Jónsdóttir nýr forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans
Una Jónsdóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns Hagfræðideildar Landsbankans.
Una hefur starfað í Hagfræðideild bankans frá árinu 2019 og hefur m.a. borið ábyrgð á greiningum og spám um þróun fasteignamarkaðar og einkaneyslu. Áður starfaði hún hjá Íbúðalánasjóði sem deildarstjóri Leigumarkaðsdeildar og í Hagdeild Alþýðusambands Íslands.
Una er með M.Sc. gráðu í hagfræði og stjórnun frá Humboldt-háskóla í Berlín og B.S. gráðu frá Háskóla Íslands. Una hefur þegar tekið við starfinu og þar með hlutverki aðalhagfræðings Landsbankans.