Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn breyt­ir vöxt­um

24. nóvember 2021

Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,35 prósentustig. Fastir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum til 36 mánaða hækka um 0,30 prósentustig og um 0,25 prósentustig á óverðtryggðum íbúðalánum til 60 mánaða. Vextir á verðtryggðum íbúðalánum, bæði breytilegir og fastir, verða óbreyttir.

Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum verða 4,20%. Lægstu fastir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum verða 4,65%.

Kjörvextir á óverðtryggðum útlánum hækka um 0,35 prósentustig en kjörvextir á verðtryggðum útlánum verða óbreyttir. Breytilegir vextir óverðtryggðra lána vegna bíla- og tækjafjármögnunar hækka um 0,35 prósentustig. Yfirdráttarvextir hækka um 0,50 prósentustig.

Vextir á óverðtryggðum sparireikningum hækka um allt að 0,50 prósentustig, vextir á reikningum með föstum vöxtum hækka um 0,50 prósentustig og vextir almennra veltureikninga hækka um 0,05 prósentustig.

Ofangreind vaxtaákvörðun Landsbankans er tekin í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands frá 17. nóvember sl. en þá hækkaði Seðlabankinn vexti um 0,50 prósentustig. Vaxtabreytingarnar taka einnig mið af vöxtum á markaði og öðrum fjármögnunarkjörum Landsbankans. 

Ný vaxtatafla bankans tekur gildi fimmtudaginn 25. nóvember 2021. Breytingar á vöxtum á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við tilkynningar þar að lútandi sem sendar verða viðskiptavinum í netbanka.

Þú gætir einnig haft áhuga á
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.