Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Við leys­um mál­in á net­inu eða í síma

Vegna herts samkomubanns og til að sporna gegn útbreiðslu Covid-19 fer þjónusta bankans fram með breyttum hætti frá og með 25. mars. Við hvetjum viðskiptavini til að nota Landsbankaappið, netbankann og hraðbankana eins og hægt er en þannig má leysa fjölmörg erindi á einfaldan og fljótlegan hátt.
24. mars 2021

Vegna herts samkomubanns og til að sporna gegn útbreiðslu Covid-19 fer þjónusta bankans fram með breyttum hætti frá og með 25. mars. Við hvetjum viðskiptavini til að nota Landsbankaappið, netbankann og hraðbankana eins og hægt er en þannig má leysa fjölmörg erindi á einfaldan og fljótlegan hátt.

Breytingarnar ná einnig til fyrirtækjaþjónustu Landsbankans og Bíla- og tækjafjármögnunar.

Við erum áfram til staðar til að leysa úr málunum. Þú getur haft samband við okkur í síma 410 4000, spjallað við okkur á netspjallinu eða sent okkur tölvupóst með erindinu. Ef þig vantar ráðgjöf getur þú pantað símtal frá ráðgjafa hér á vefnum. Við hringjum síðan í þig á þeim tíma sem þú pantar.

  • Hægt er að annast flest bankaviðskipti í Landsbankaappinu, netbankanum og á vef bankans.
  • Þjónustuverið er opið alla virka daga frá klukkan 9-16.
  • Netspjallið er opið alla virka daga frá klukkan 9-17.
  • Til að panta símtal frá ráðgjafa getur þú fyllt út pöntunarform eða haft samband við Þjónustuverið.
  • Hægt er að hafa samband við Þjónustuver Landsbankans í síma 410 4000, með því að senda póst á netfangið landsbankinn@landsbankinn.is eða í netspjallinu á vef bankans.
  • Við hvetjum viðskiptavini sem þurfa aðstoð eða eru óvanir að nýta sér rafrænar lausnir til að hafa samband við Þjónustuverið í síma 410 4000.
  • Hægt er að hafa samband við Þjónustuver fyrirtækja með því að hringja í 410 5000 eða senda tölvupóst í fyrirtaeki@landsbankinn.is.
  • Hraðbankar Landsbankans eru flestir aðgengilegir allan sólarhringinn. Hægt er að sjá staðsetningu og fjarlægð í næsta hraðbanka í Landsbankaappinu. Í hraðbönkum er m.a. hægt að taka út og leggja inn reiðufé og greiða reikninga.

Nánari upplýsingar

Nýttu þér bankaþjónustu í símanum og á netinu

Þú gætir einnig haft áhuga á
Austurbakki
5. júní 2026
Rarik sækir 10 milljarða króna í fyrstu grænu skuldabréfaútgáfu félagsins
Rarik ohf. lauk miðvikudaginn 3. júní 2026 útboði á nýjum grænum skuldabréfaflokki, RARIK 100633 GB, þar sem tilboðum að heildarfjárhæð 10 milljarðar króna var tekið. Um er að ræða fyrstu grænu skuldabréfaútgáfu félagsins undir grænni fjármögnunarumgjörð þess.
5. júní 2026
Enn tími til að sækja um styrk úr Gleðigöngupotti
Gleðigöngupotturinn er samstarfsverkefni Hinsegin daga og Landsbankans sem hefur verið stoltur styrktaraðili hátíðarinnar frá upphafi.
5. júní 2026
Vild – nýtt vildarkerfi
Það er okkur mikil ánægja að kynna Vild, nýtt vildarkerfi Landsbankans, sem byggir á heildarsambandi viðskiptavina við okkur. Viðskiptavinir safna stigum út frá því hvaða þjónustu þeir nota, hversu virkir þeir eru og hversu lengi þeir hafa verið í viðskiptum við bankann. Með fleiri stigum færast viðskiptavinir upp um þrep og fríðindin aukast.
Helgi F. Margeirsson
5. júní 2026
Helgi F. Margeirsson nýr útibússtjóri á Sauðárkróki
Helgi F. Margeirsson hefur tekið við sem útibússtjóri Landsbankans á Sauðárkróki. Hann hefur starfað í útibúinu frá árinu 2009, lengst af sem viðskiptastjóri fyrirtækja.
Listahátíð í Reykjavík 2026
2. júní 2026
Listahátíð í Reykjavík er hafin – tvær sýningar í Landsbankanum
Listahátíð í Reykjavík hófst formlega með glæsilegri opnunarhátíð síðastliðinn laugardag í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi.
Námsstyrkir 2026
29. maí 2026
Tíu milljónum úthlutað í námsstyrki
Landsbankinn úthlutaði námsstyrkjum til sextán hæfileikaríkra námsmanna úr Samfélagssjóði bankans þann 27. maí. Námsstyrkirnir voru veittir í þrítugasta og sjöunda sinn og var heildarupphæð þeirra hækkuð í 10 milljónir króna í ár. Alls bárust um 330 umsóknir.
Skólahreysti 2026
26. maí 2026
Grunnskóli Húnaþings vestra bar sigur úr býtum í Skólahreysti 2026
Grunnskóli Húnaþings vestra sigraði Skólahreysti 2026 eftir spennandi úrslitakeppni sem fram fór að Varmá í Mosfellsbæ laugardaginn 23. maí. Keppnin var æsispennandi og skemmtileg en liðið stóð uppi sem sigurvegari með 60 stig eftir glæsilega frammistöðu í öllum greinum keppninnar.
Landsbankinn
21. maí 2026
Landsbankinn breytir vöxtum
Landsbankinn breytir vöxtum á innlánum og útlánum. Breytingar á föstum vöxtum á nýjum íbúðalánum taka gildi föstudaginn 22. maí 2026. Aðrar vaxtabreytingar taka gildi fimmtudaginn 28. maí 2026, með þeim undantekningum sem tilgreindar eru hér að neðan. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Jón Þ. Grímsson
20. maí 2026
Jón Þór Grímsson nýr yfirlögfræðingur Landsbankans
Jón Þór Grímsson hefur verið ráðinn yfirlögfræðingur Landsbankans.
11. maí 2026
Opið fyrir umsóknir í Menningarnæturpott Landsbankans
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans 2026. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí. Menningarnæturpotturinn er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Landsbankans en bankinn hefur verið máttarstólpi hátíðarinnar frá upphafi.