Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn á Djúpa­vogi flyt­ur

Afgreiðsla Landsbankans á Djúpavogi hefur tekið til starfa í verslunar- og þjónustukjarnanum að Búlandi 1, þar sem Kjörbúðin, Íslandspóstur og Vínbúðin eru einnig til húsa. Afgreiðslutími bankans er óbreyttur og hraðbanki verður aðgengilegur á opnunartíma Kjörbúðarinnar.
17. febrúar 2021 - Landsbankinn

Sífellt fleiri nýta sér stafræna þjónustu bankans og þar sem eldra húsnæði að Markarlandi 1 var orðið óþarflega stórt var ákveðið að flytja afgreiðsluna í hagkvæmari og hentugri húsakynni. Samhliða þessum breytingum lýkur samstarfi Landsbankans við Íslandspóst á Djúpavogi.

Við tökum áfram vel á móti viðskiptavinum okkar á Djúpavogi þar sem veitt verður öll almenn gjaldkeraþjónusta, svo sem reiðufjárþjónusta, virkjun á rafrænum skilríkjum og fleira, auk þess sem starfsfólk mun sem fyrr aðstoða viðskiptavini við að nýta sér stafræna þjónustu bankans.

Þú gætir einnig haft áhuga á
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.