Fréttir

Jafn­rétt­is­mál á vinnu­stöð­um til um­ræðu

Ráðstefna um jafnréttismál á vinnustöðum var haldin á Egilsstöðum föstudaginn 8. nóvember. Alcoa Fjarðaál, Landsvirkjun og Landsbankinn stóðu að ráðstefnunni. Rætt var um mikilvægi þess að leggja áherslu á jafnréttismál á vinnustöðum og í atvinnulífinu.
11. nóvember 2019

Hvar eru þær?

Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans flutti erindi undir yfirskriftinni Hvar eru þær? Þrátt fyrir að Ísland skipi sér í efsta sæti heimslista þegar kemur að jafnrétti kynjanna þá hallar verulega á konur í stjórnunarstöðum. Lilja ræddi um hvað Landsbankinn hefur gert til að setja jafnréttismál á oddinn og hvað hefur áunnist. Stefna bankans í þessum málum er skýr en hún sagði það ekki nóg, það þarf að fylgja henni eftir og hafa sýnileg markmið. Þá heldur bankinn kynjabókhald yfir þau sem koma fram fyrir hönd bankans í ræðu og riti og er það hlutfall nú jafnt. Lilja ræddi einnig um mikilvægi fyrirmynda og tók skýrt fram að árangur í auknu jafnrétti í atvinnulífi náist ekki nema stjórnendur setji málaflokkinn í forgang.

Mikill ávinningur fyrir fyrirtæki að vinna með jafnréttismál

Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar sagði frá því hvernig það að leggja áherslu á jafnréttismál hafi leitt til betri menningar og betri vinnustaðar fyrir alla. Landsvirkjun ákvað að setja aukna áherslu á jafnréttismál árið 2017 og tók þá upp samstarf við Capacent um Jafnréttisvísi. Þá var ráðist í heildstæða úttekt á stöðu jafnréttismála í fyrirtækinu, ekki aðeins á mælanlegum þáttum eins og kynjahlutafalli og launum heldur einnig á menningu, samskiptum og vinnuumhverfi. Þessi vinna hefur skilað aðgerðaáætlun jafnréttismála til þriggja ára sem fylgt hefur verið eftir með því að setja niður markmið, aðgerðaáætlun og mælikvarða. Hörður sagði það hafa verið gefandi vinnu að rýna vinnustaðarmenninguna með starfsfólki og komið sér skemmtilega á óvart hvað öll voru viljug að taka þátt í verkefninu. Meðal þess sem hefur verið breytt er að tekin hafa verið upp ný starfsheiti, nýtt ráðningarferli, áhersla á jafnrétti við gerð markaðsefnis og boðið upp á jafnréttisþjálfun fyrir stjórnendur.

Það þarf kjark til að ögra vinnustaðarmenningu

Frá því að Fjarðaál tók til starfa hefur fyrirtækið haft metnaðarfull markmið þegar kemur að jöfnu kynjahlutafalli á vinnustaðnum. En eitt er að setja markmið og annað að ná því líkt og Guðný Björg Hauksdóttir framkvæmdastjóri mannauðs greindi frá í erindi sínu. Hlutfall kvenna hefur rokkað upp og niður hjá fyrirtækinu, hæst í 32% árið 2008 og lægt í 19% árið 2015. Með markvissum aðgerðum líkt og breytingu á vaktakerfi og rýningu á vinnustaðarmenningu hefur náðst árangur en Guðný benti á að þetta væri stanslaust verkefni og ekki mætti slá slöku við. Guðný greindi einnig frá því hvernig fyrirtækið tókst á við #metoo byltinguna með því að bjóða upp á kynjaskipta fundi fyrir alla starfsmenn í fyrirtækinu og út úr þeirri vinnu kom vinnustaðarsáttmáli sem starfsfólk kvittaði undir með táknrænum hætti. Það var áberandi krafa bæði kvenna og karla í þessari vinnu að allir vilja vinna á vinnustað þar sem heilbrigð vinnustaðarmenning er ríkjandi. Að lokum benti Guðný á að við eigum enn heillangt í land hér á landi hvað það varðar að styrkja stöðu kvenna í stjórnendastöðum og eins að létta af þeim álagi á heimili svo þær hafi jöfn tækifæri til að sækja fram í atvinnulífinu.

Fyrirtæki ánægð með jafnlaunavottun

Þorsteinn Víglundsson þingmaður Viðreisnar var félagsmálaráðherra þegar lög um jafnlaunavottun voru samþykkt frá Alþingi. Þorsteinn greindi frá því að samkvæmt nýlegri könnun sem unnin var fyrir forsætisráðuneytið eru 81% vottaðra fyrirtækja mjög eða frekar ánægð með Jafnlaunavottunina og þá fannst 75% fyrirtækja vottunin auka yfirsýn og skilvirkni í rekstri. Þegar jafnlaunavottunin var kynnt til sögunnar höfðu mörg fyrirtæki áhyggjur af kostnaði sem vottunarferlið myndi hafa í för með sér en í fyrrnefndri könnun var kostnaður í 8. sæti af 12 valmöguleikum yfir erfiðleika við innleiðingu. Þorsteinn ræddi einnig um mikilvægi þess að karlar láti til sín taka í umræðunni og baráttunni fyrir jafnréttismálum og að þeir líti ekki á hana sem ógn við sig. Kynjajafnrétti er allra hagur og Þorsteinn sagði að samkvæmt rannsóknum þá lifa karlmenn í samfélögum þar sem jafnrétti ríkir lengur.

Jafnréttisvísir Capacent

Þórey Vilhjálmsdóttir ráðgjafi og meðeigandi hjá Capacent greindi frá Jafnréttisvísi Capacent sem er verkefni fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja stuðla að vitundarvakningu um jafnréttismál og móta skýr markmið í framhaldinu. Staðan í fyrirtækinu er metin út frá ítarlegri greiningarvinnu og komið er á fót breytingaverkefnum til að bæta stöðu jafnréttismála og innleiða þau. Notaðir eru mælikvarðar eins og kynjahalli í launadreifingu og glerþakslíkan. Einnig er leitast við það að fá uppá yfirborðið þá ómeðvituðu kynbundnu fordóma sem oft leynast í menningu, umhverfi og skipulagi fyrirtækja. Fyrirtæki og stofnanir sem taka þátt í verkefninu hljóta viðurkenningu þar sem formlega er vottað að fyrirtækið sé aðili að Jafnréttisvísi Capacent. Þórey sagði einnig frá lærdóminum sem hún og samstarfsfélagar hafa dregið af vinnunni með Jafnréttisvísinum en þau hafa tekið yfir 200 viðtöl við fólk á vinnustöðum og yfir 2000 manns hafa mætt á vinnustofur hjá þeim.

Hægt er að nálgast upptöku af ráðstefnunni á facebook síðu Austurfréttar.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Netbanki
19. júlí 2024
Upplýsingar vegna kerfisbilunar
Engar truflanir eru lengur á þjónustu bankans. Í nótt og í morgun voru truflanir á ýmsum þjónustuþáttum sem tengdust bilun sem haft hefur áhrif á fyrirtæki víða um heim.
15. júlí 2024
Níu atriði fengu úthlutun úr Gleðigöngupottinum
Dómnefnd Gleðigöngupotts Hinsegin daga og Landsbankans hefur úthlutað styrkjum til níu atriða í Gleðigöngunni.
Stúlka með síma
12. júlí 2024
Enn einfaldara að byrja að nota Landsbankaappið
Nýskráning í Landsbankaappið hefur aldrei verið einfaldari og nú geta allir prófað appið án nokkurra skuldbindinga. Með þessu opnum við enn frekar fyrir aðgang að þjónustu Landsbankans.
Menningarnótt 2023
9. júlí 2024
24 verkefni fá úthlutað úr Menningarnæturpottinum
Í ár fá 24 spennandi verkefni styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans og Reykjavíkurborgar. Verkefnin miða meðal annars að því að færa borgarbúum myndlist, tónlist og fjölbreytta listgjörninga, bæði innan- og utandyra.
Austurbakki
5. júlí 2024
Fyrirtækjaráðgjöf verður ráðgjafi fjármálaráðuneytisins vegna sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa við skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eftirstandandi eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf.
Björn A. Ólafsson
4. júlí 2024
Björn Auðunn Ólafsson til liðs við Landsbankann
Björn Auðunn Ólafsson hefur gengið til liðs við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og hefur hann þegar hafið störf.
Landsbankinn.pl
3. júlí 2024
Meiri upplýsingar á pólsku á landsbankinn.pl
Við höfum bætt við pólskri útgáfu af Landsbankavefnum, til viðbótar við íslenska og enska útgáfu. Á pólska vefnum eru upplýsingar um appið okkar, greiðslukort, gengi gjaldmiðla, viðbótarlífeyrissparnað, rafræn skilríki, Auðkennisappið og fleira.
2. júlí 2024
Enn meira öryggi í Landsbankaappinu
Við höfum bætt stillingarmöguleikum við Landsbankaappið sem auka enn frekar öryggi í korta- og bankaviðskiptum. Nú getur þú með einföldum hætti lokað fyrir tiltekna notkun á greiðslukortum í appinu og síðan opnað fyrir þær aftur þegar þér hentar. Ef þörf krefur getur þú valið neyðarlokun og þá er lokað fyrir öll kortin þín og aðgang að appi og netbanka.
Arinbjörn Ólafsson og Theódór Ragnar Gíslason
20. júní 2024
Landsbankinn og Defend Iceland vinna saman að netöryggi
Landsbankinn og netöryggisfyrirtækið Defend Iceland hafa gert samning um aðgang að hugbúnaði villuveiðigáttar fyrirtækisins til að auka og styrkja varnir gegn árásum á net- og tölvukerfi Landsbankans.
14. júní 2024
Hægt að nota Auðkennisappið við innskráningu
Við vekjum athygli á að hægt er að nota Auðkennisappið til að skrá sig inn og til auðkenningar í netbankanum og Landsbankaappinu og innan tíðar verður einnig hægt að framkvæma fullgildar rafrænar undirritanir. Það hentar einkum þegar þú ert í netsambandi en ekki í símasambandi eða ert með erlent farsímanúmer.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur