Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Off-venue tón­leik­ar í úti­bú­inu í Aust­ur­stræti og í Stúd­enta­kjall­ar­an­um

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves verður haldin dagana 7. - 10. nóvember í miðborg Reykjavíkur. Landsbankinn hefur verið einn af aðalbakhjörlum hátíðarinnar frá árinu 2014 og tekur m.a. þátt í henni með því að standa fyrir off-venue tónleikum í útibúinu í Austurstræti og í Stúdentakjallaranum.
7. nóvember 2018

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves verður haldin dagana 7. - 10. nóvember í miðborg Reykjavíkur. Landsbankinn hefur verið einn af aðalbakhjörlum hátíðarinnar frá árinu 2014 og tekur m.a. þátt í henni með því að standa fyrir off-venue tónleikum í útibúinu í Austurstræti og í Stúdentakjallaranum.

Off-venue tónleikar – Allir velkomnir!

Dagskrá:

Stúdentakjallarinn, fimmtudagurinn 8. nóvember

Kl. 17.00 – Huginn

Kl. 17.30 - Bríet

Kl. 18.00 - Kælan Mikla

Landsbankinn, Austurstræti 11, laugardagurinn 10. nóvember

Kl. 15.30 – Huginn

Kl. 16.00 - Bríet

Kl. 16.30 – Aron Can

Bríet, Huginn og Kælan Mikla á Iceland Airwaves-vef Landsbankans

Landsbankinn hitaði upp fyrir Iceland Airwaves með því að birta ný myndbönd og viðtöl við ungt tónlistarfólk á Iceland Airwaves-vef bankans. Að þessu sinni stendur bankinn að útgáfunni í samvinnu við Hugin, Bríeti og hljómsveitina Kæluna miklu. Þetta er fimmta árið sem Landsbankinn er einn af aðalbakhjörlum hátíðarinnar en bankinn vill með stuðningi sínum styðja við bakið á upprennandi tónlistarfólki.

Árshátíð íslenskrar tónlistar

Þú gætir einnig haft áhuga á
11. maí 2026
Opið fyrir umsóknir í Menningarnæturpott Landsbankans
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans 2026. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí. Menningarnæturpotturinn er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Landsbankans en bankinn hefur verið máttarstólpi hátíðarinnar frá upphafi.
17. apríl 2026
Hagkerfi í hægum vexti - hagspá til 2028
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð. Hagvöxtur verður hóflegur og einkum drifinn áfram af þjónustuútflutningi. Útlit er fyrir að verðbólga verði 4,8% í ár og sennilegt er að stýrivextir verði hækkaðir upp í 8,25% á þessu ári. Merki eru um slaka á vinnumarkaði með auknu atvinnuleysi og minni eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki.
1. apríl 2026
Þjónusta um páskana – appið og Ellí loka ekki
Útibú og þjónustuver Landsbankans verða að venju lokuð um páskana og opna næst þriðjudaginn 7. apríl nk.
26. mars 2026
Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus
Alfa Framtak hefur samið við Orkla Snacks um kaup á öllu hlutafé í Nóa Síríus.
Samstarfssamningur
26. mars 2026
Landsbankinn og Félagsstofnun stúdenta framlengja samstarfssamning
Landsbankinn og Félagsstofnun stúdenta (FS) hafa framlengt samstarfssamning sinn til næstu tveggja ára. Á samningstímanum mun Landsbankinn annast alla almenna bankaþjónustu og greiðslumiðlun fyrir rekstrareiningar FS. Bankinn mun einnig sjá um eignastýringu og ávöxtun á sjóðum FS og saman munu FS og Landsbankinn standa að ýmsum verkefnum og viðburðum.
Eystra horn
23. mars 2026
Hagnaður Landsbréfa 978 milljónir króna á árinu 2025
Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna ársins 2025.
Landsbankinn
23. mars 2026
Landsbankinn breytir vöxtum
Landsbankinn breytir vöxtum á innlánum og útlánum. Breytingar á föstum vöxtum á nýjum íbúðalánum taka gildi mánudaginn 23. mars 2026. Aðrar vaxtabreytingar taka gildi föstudaginn 27. mars 2026. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
10. mars 2026
Þú færð tryggingarnar hjá Landsbankanum  
Landsbankinn, í samstarfi við TM, býður nú upp á tryggingar fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Viðskiptavinum bankans bjóðast betri kjör og fyrsta flokks tryggingaþjónusta.
Gulleggið 2026
27. feb. 2026
Affineva með Gulleggið 2026 í höndunum
Teymið Affineva stóð uppi sem sigurvegari í lokakeppni Gulleggsins 2026, stærstu og elstu frumkvöðlakeppni Íslands. Sara Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Samfélags og menningar, afhenti teyminu vegleg peningaverðlaun fyrir hönd Landsbankans sem hefur um árabil verið aðalbakhjarl keppninnar.