Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn set­ur upp rúblu­hrað­banka í Smáralind

Landsbankinn hefur sett upp rúbluhraðbanka í Smáralind í tilefni af heimsmeistaramótinu í fótbolta sem hefst í Rússlandi í júní. Fjöldi Íslendinga er á leið á HM í Rússlandi en rússneskar rúblur eru alla jafna ekki fáanlegar á Íslandi. Rúbluhraðbankinn er á 2. hæð Smáralindar, við útganginn úr Smárabíói.
18. maí 2018

Landsbankinn hefur sett upp rúbluhraðbanka í Smáralind í tilefni af heimsmeistaramótinu í fótbolta sem hefst í Rússlandi í júní. Fjöldi Íslendinga er á leið á HM í Rússlandi en rússneskar rúblur eru alla jafna ekki fáanlegar á Íslandi. Rúbluhraðbankinn er á 2. hæð Smáralindar, við útganginn úr Smárabíói. Athygli er vakin á því að aðeins er hægt að nálgast rúblur í rúbluhraðbankanum.

Landsbankinn er stoltur styrktaraðili Knattspyrnusambands Íslands og knattspyrnulandsliðanna. Fyrsti leikur Íslands á HM verður gegn Argentínu í Moskvu þann 16. júní. Þar í borg getur cappuccino-bolli kostað um 172 rúblur eða 290 krónur og ein ferð í strætó kostar 53 rúblur eða 90 krónur.

Það er gott að hafa smávegis gjaldeyri meðferðis erlendis eins og fjallað er um í nýrri grein á Umræðunni um góð ráð um kortanotkun í útlöndum. Í rúbluhraðbankanum í Smáralind eru 1.000 rúblaseðlar og á vef bankans er hægt að fá upplýsingar um gengi rúblunnar.

Eftir að HM lýkur getur fólk skipt rúbluseðlum aftur yfir í íslenskar krónur. Það verður þó væntanlega aðeins í boði í takmarkaðan tíma og því hvetjum við Rússlandsfara til að skipta afgangsrúblunum fljótlega eftir að heim er komið.

Áfram Ísland!

Þú gætir einnig haft áhuga á
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.