Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Op­inn fund­ur á Ak­ur­eyri um varn­ir gegn fjár­svik­um

Landsbankinn og Samtök atvinnurekenda á Akureyri standa fyrir opnum fundi á Akureyri fimmtudaginn 15. mars um hvernig fyrirtæki geta varist fjársvikum. Tilraunum til slíkra svika fer fjölgandi en í mörgum tilfellum senda svikararnir fölsk skilaboð í nafni stjórnenda til að komast inn fyrir varnir fyrirtækja.
13. mars 2018

Landsbankinn og Samtök atvinnurekenda á Akureyri standa fyrir opnum fundi á Akureyri fimmtudaginn 15. mars um hvernig fyrirtæki geta varist fjársvikum. Tilraunum til slíkra svika hefur fjölgað á undanförnum árum en í mörgum tilfellum senda svikararnir fölsk skilaboð í nafni stjórnenda til að komast inn fyrir varnir fyrirtækja.

Tilraunum til að svíkja fé af fyrirtækjum hefur fjölgað mikið undanfarin tvö ár. Fyrirtæki geta varið sig gegn ýmis konar netárásum með öryggiskerfum en þau duga skammt við að verjast fyrirmælafölsun en eitt mikilvægasta vopnið gegn fyrirmælafölsun er fræðsla og vitundarvakning hjá starfsfólki fyrirtækja. Fyrirmælafölsun er stundum einnig nefnd stjórnendasvik (e. CEO-fraud). Svikin fara þannig fram að fjársvikararnir villa á sér heimildir og þykjast vera stjórnendur í fyrirtækinu sem svikatilraunin beinist gegn og senda trúverðug fyrirmæli á starfsmenn um að millifæra fé með hraði.

Á fundinum fjalla þeir Hákon L. Åkerlund og Guðmundur Ö. Ingvarsson, sérfræðingar í öryggismálum hjá Landsbankanum, um einkenni svikatilraunanna og varnir gegn þeim.

Fundurinn verður haldinn á efri hæð Greifans við Glerárgötu 20, fimmtudaginn 15. mars kl. 12.00–13.00. Húsið verður opnað kl. 11.45 og fundur hefst stundvíslega kl. 12.00.

Landsbankinn leggur mikla áherslu á öryggismál. Á Umræðunni, efnis- og fréttaveitu bankans, er ítarleg umfjöllun um netöryggismál sem á erindi við einstaklinga og fyrirtæki.

Öryggisátak Landsbankans á Umræðunni

Þú gætir einnig haft áhuga á
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.