Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Arn­heið­ur Klausen Gísla­dótt­ir nýr for­stöðu­mað­ur Fyr­ir­tækjamið­stöðv­ar

Arnheiður Klausen Gísladóttir hefur tekið við starfi forstöðumanns Fyrirtækjamiðstöðvar Landsbankans í Borgartúni í Reykjavík.
22. janúar 2018

Arnheiður Klausen Gísladóttir

Arnheiður Klausen Gísladóttir hefur tekið við starfi forstöðumanns Fyrirtækjamiðstöðvar Landsbankans í Borgartúni í Reykjavík.

Arnheiður lauk B.Sc.-prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 2000. Við útskrift hóf hún störf sem sérfræðingur í útlánamati fyrir útibú Landsbankans. Hún varð útibússtjóri í Austurbæjarútibúi, síðar Borgartúnsútibúi, árið 2007 og hefur verið svæðisstjóri í Fyrirtækjamiðstöðinni frá árinu 2014.

Fyrirtækjamiðstöð Landsbankans sinnir málefnum minni og meðalstórra fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu. Þar eru allir starfsmenn fyrirtækjaþjónustu bankans á höfuðborgarsvæðinu staðsettir og fyrirtæki geta sótt þangað alla þjónustu sem þau þarfnast. Starf forstöðumanns Fyrirtækjamiðstöðvar var auglýst 11. nóvember sl. og var Arnheiður valin úr stórum hópi umsækjenda.

Nánar um fyrirtækjaþjónustu Landsbankans

Þú gætir einnig haft áhuga á
Landsbankinn
31. okt. 2026
Færslur á debetkort tvíbókaðar
Vegna villu eru dæmi um að debetkortafærslur hafi verið tvíbókaðar á reikninga viðskiptavina.
Austurbakki
29. okt. 2026
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2026
Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 nam 33,1 milljarði króna eftir skatta, samanborið við 29,5 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var 11,1 milljarður króna. Arðsemi eiginfjár var 13,3% samanborið við 12,2% á sama tímabili árið áður.
28. okt. 2026
Fjölmenni og líflegar umræður á hagspárfundi
Fullt hús var á Kjarval miðvikudaginn 21. október þegar Greiningardeild Landsbankans kynnti hagspá sína til ársins 2029.
23. okt. 2026
Ella Gränz ráðin mannauðsstjóri Landsbankans
Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi nýs árs.
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.