Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn gef­ur út skulda­bréf fyr­ir 300 millj­ón evr­ur

Landsbankinn lauk 21. nóvember sölu á nýjum 5,5 ára skuldabréfaflokki að fjárhæð 300 milljónir evra með lokagjalddaga í maí 2023 og bera skuldabréfin fasta 1,00% vexti. Skuldabréfin voru seld á kjörum sem jafngilda 85 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði.
21. nóvember 2017

Landsbankinn lauk 21. nóvember sölu á nýjum 5,5 ára skuldabréfaflokki að fjárhæð 300 milljónir evra með lokagjalddaga í maí 2023 og bera skuldabréfin fasta 1,00% vexti. Skuldabréfin voru seld á kjörum sem jafngilda 85 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði. Heildareftirspurn nam yfir 600 milljónum evra frá 70 fjárfestum. Skuldabréfin voru seld til stofnanafjárfesta í Bretlandi, meginlandi Evrópu, Norðurlöndum og Asíu.

Andvirði skuldabréfaútgáfunnar verður meðal annars nýtt til endurfjármögnunar evru-útgáfu bankans á gjalddaga í október 2018 í framhaldi af endurkaupatilboði bankans sem lýkur á föstudag, 24. nóvember 2017.

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans og er stefnt að því að skuldabréfin verði tekin til viðskipta í írsku kauphöllinni þann 29. nóvember 2017.

Umsjónaraðilar sölunnar voru Citigroup, Deutsche Bank, Morgan Stanley og Nomura.

Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri Fjármála hjá Landsbankanum:

„Mikil eftirspurn breiðs hóps fjárfesta í útgáfunni er til vitnis um mikið traust fjárfesta til Landsbankans og íslensks efnahagslífs. Útgáfan kemur í kjölfar nýlegrar hækkunar S&P Global Ratings á lánshæfiseinkunn bankans og er bankinn nú að fjármagna sig í erlendri mynt á betri kjörum og til lengri tíma en áður.“

Þú gætir einnig haft áhuga á
23. okt. 2026
Ella Gränz ráðin mannauðsstjóri Landsbankans
Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi nýs árs.
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.