Fréttir

Hall­dóra Víf­ils­dótt­ir geng­ur til liðs við Lands­bank­ann

Halldóra Vífilsdóttir arkitekt hefur gengið til liðs við Landsbankann og mun hún starfa í teymi sem vinnur að undirbúningi nýbyggingar bankans við Austurhöfn í Reykjavík.
7. september 2017

Halldóra Vífilsdóttir arkitekt hefur gengið til liðs við Landsbankann og mun hún starfa í teymi sem vinnur að undirbúningi nýbyggingar bankans við Austurhöfn í Reykjavík.

Halldóra Vífilsdóttir.

Halldóra lauk BA-námi í arkitektúr frá Háskólanum í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum árið 1994, hún útskrifaðist með meistaragráðu í arkitektúr frá Tækniháskólanum í Helsinki árið 1997 og stundaði nám á meistarastigi í skipulagsfræðum við Landbúnaðarháskóla Íslands árið 2010.

Eftir útskrift árið 1994 vann Halldóra m.a. sem arkitekt, hönnunarstjóri og framkvæmdastjóri auk þess sem hún hefur sinnt stundakennslu í framkvæmdafræði við Háskóla Íslands. Halldóra hóf störf sem verkefnastjóri hjá Framkvæmdasýslu ríkisins árið 2010 og var skipuð aðstoðarforstjóri stofnunarinnar í ágúst 2012. Hún hefur verið forstjóri Framkvæmdasýslunnar frá nóvember 2014. Hún lætur af því starfi í lok nóvember og verður í fullu starfi hjá bankanum frá og með 1. desember nk. Halldóra hefur gegnt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum en hún var m.a. formaður nefndar menntamálaráðherra sem falið var að koma með tillögur að stefnu stjórnvalda í mannvirkjagerð. Hún tók einnig þátt í að móta gæðastefnu Reykjavíkurborgar á sviði manngerðs umhverfis.

Lilja B. Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans segir: „Það er mikilvægt að fá sérfræðinga í hönnun og framkvæmdum til liðs við okkur vegna fyrirhugaðrar nýbyggingar bankans við Austurhöfn. Halldóra býr yfir mikilli reynslu og þekkingu á þessu sviði, m.a. á hönnun húsa fyrir verkefnamiðað vinnuumhverfi og er bankanum því mikilvægur liðsauki.“

Halldóra Vífilsdóttir segir: „Nýbygging Landsbankans við Austurhöfn er krefjandi og spennandi verkefni. Mikilvægt er að húsnæðið verði hagkvæmt og styðji við starfsemi bankans og að skipulag þess stuðli að því að hægt verði að laða fram það besta sem í starfsfólkinu býr. Ég hlakka mikið til að vinna með starfsfólki bankans og hönnuðum að því að reisa nýtt hús fyrir starfsemina, hús sem mun sóma sér vel á þessum mikilvæga stað.“

Þú gætir einnig haft áhuga á
15. júlí 2024
Níu atriði fengu úthlutun úr Gleðigöngupottinum
Dómnefnd Gleðigöngupotts Hinsegin daga og Landsbankans hefur úthlutað styrkjum til níu atriða í Gleðigöngunni.
Stúlka með síma
12. júlí 2024
Enn einfaldara að byrja að nota Landsbankaappið
Nýskráning í Landsbankaappið hefur aldrei verið einfaldari og nú geta allir prófað appið án nokkurra skuldbindinga. Með þessu opnum við enn frekar fyrir aðgang að þjónustu Landsbankans.
Menningarnótt 2023
9. júlí 2024
24 verkefni fá úthlutað úr Menningarnæturpottinum
Í ár fá 24 spennandi verkefni styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans og Reykjavíkurborgar. Verkefnin miða meðal annars að því að færa borgarbúum myndlist, tónlist og fjölbreytta listgjörninga, bæði innan- og utandyra.
Austurbakki
5. júlí 2024
Fyrirtækjaráðgjöf verður ráðgjafi fjármálaráðuneytisins vegna sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa við skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eftirstandandi eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf.
Björn A. Ólafsson
4. júlí 2024
Björn Auðunn Ólafsson til liðs við Landsbankann
Björn Auðunn Ólafsson hefur gengið til liðs við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og hefur hann þegar hafið störf.
Landsbankinn.pl
3. júlí 2024
Meiri upplýsingar á pólsku á landsbankinn.pl
Við höfum bætt við pólskri útgáfu af Landsbankavefnum, til viðbótar við íslenska og enska útgáfu. Á pólska vefnum eru upplýsingar um appið okkar, greiðslukort, gengi gjaldmiðla, viðbótarlífeyrissparnað, rafræn skilríki, Auðkennisappið og fleira.
2. júlí 2024
Enn meira öryggi í Landsbankaappinu
Við höfum bætt stillingarmöguleikum við Landsbankaappið sem auka enn frekar öryggi í korta- og bankaviðskiptum. Nú getur þú með einföldum hætti lokað fyrir tiltekna notkun á greiðslukortum í appinu og síðan opnað fyrir þær aftur þegar þér hentar. Ef þörf krefur getur þú valið neyðarlokun og þá er lokað fyrir öll kortin þín og aðgang að appi og netbanka.
Arinbjörn Ólafsson og Theódór Ragnar Gíslason
20. júní 2024
Landsbankinn og Defend Iceland vinna saman að netöryggi
Landsbankinn og netöryggisfyrirtækið Defend Iceland hafa gert samning um aðgang að hugbúnaði villuveiðigáttar fyrirtækisins til að auka og styrkja varnir gegn árásum á net- og tölvukerfi Landsbankans.
14. júní 2024
Hægt að nota Auðkennisappið við innskráningu
Við vekjum athygli á að hægt er að nota Auðkennisappið til að skrá sig inn og til auðkenningar í netbankanum og Landsbankaappinu og innan tíðar verður einnig hægt að framkvæma fullgildar rafrænar undirritanir. Það hentar einkum þegar þú ert í netsambandi en ekki í símasambandi eða ert með erlent farsímanúmer.
14. júní 2024
Do logowania można używać aplikacji Auðkenni
Zwracamy uwagę na fakt, iż do logowania można używać aplikacji Auðkenni, jaki i do identyfikacji w bankowości elektronicznej i aplikacji bankowej. Ponadto niebawem będzie można składać kwalifikowane podpisy elektroniczne. Może to być szczególnie przydatne, gdy będziesz miał(a) dostęp do Internetu, ale nie będziesz miał(a) zasięgu sieci telefonicznej lub w przypadku zagranicznego numeru telefonu komórkowego.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur