Fréttir

Lands­bank­inn fyr­ir­mynd­ar­fyr­ir­tæki í góð­um stjórn­ar­hátt­um

Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti hefur endurnýjað viðurkenningu Landsbankans sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum fyrir tímabilið 2016-2017. Það eru Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Nasdaq OMX Iceland og Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands sem standa að baki viðurkenningarinnar.
Tíu fyrirtæki fengu viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum.
23. mars 2017 - Landsbankinn

Lilja B. Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, tók á móti viðurkenningunni við hátíðlega athöfn í Hörpu.

Tíu fyrirtæki fengu viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum.

Viðurkenningin byggir á úttekt Deloitte ehf. á stjórnarháttum bankans sem fram fór í janúar. Úttektin tekur mið af leiðbeiningum um góða stjórnarhætti sem eru gefnar út af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands er umsjónaraðili viðurkenningarferlisins.

Landsbankinn hlaut viðurkenninguna fyrst árið 2014 og hefur hlotið hana árlega síðan þá. Viðurkenningin er fyrst og fremst veitt til þess að ýta undir umræður og aðgerðir sem efla góða stjórnarhætti.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Austurbakki
5. júlí 2024
Fyrirtækjaráðgjöf verður ráðgjafi fjármálaráðuneytisins vegna sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa við skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eftirstandandi eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf.
Björn A. Ólafsson
4. júlí 2024
Björn Auðunn Ólafsson til liðs við Landsbankann
Björn Auðunn Ólafsson hefur gengið til liðs við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og hefur hann þegar hafið störf.
Landsbankinn.pl
3. júlí 2024
Meiri upplýsingar á pólsku á landsbankinn.pl
Við höfum bætt við pólskri útgáfu af Landsbankavefnum, til viðbótar við íslenska og enska útgáfu. Á pólska vefnum eru upplýsingar um appið okkar, greiðslukort, gengi gjaldmiðla, viðbótarlífeyrissparnað, rafræn skilríki, Auðkennisappið og fleira.
2. júlí 2024
Enn meira öryggi í Landsbankaappinu
Við höfum bætt stillingarmöguleikum við Landsbankaappið sem auka enn frekar öryggi í korta- og bankaviðskiptum. Nú getur þú með einföldum hætti lokað fyrir tiltekna notkun á greiðslukortum í appinu og síðan opnað fyrir þær aftur þegar þér hentar. Ef þörf krefur getur þú valið neyðarlokun og þá er lokað fyrir öll kortin þín og aðgang að appi og netbanka.
Arinbjörn Ólafsson og Theódór Ragnar Gíslason
20. júní 2024
Landsbankinn og Defend Iceland vinna saman að netöryggi
Landsbankinn og netöryggisfyrirtækið Defend Iceland hafa gert samning um aðgang að hugbúnaði villuveiðigáttar fyrirtækisins til að auka og styrkja varnir gegn árásum á net- og tölvukerfi Landsbankans.
14. júní 2024
Hægt að nota Auðkennisappið við innskráningu
Við vekjum athygli á að hægt er að nota Auðkennisappið til að skrá sig inn og til auðkenningar í netbankanum og Landsbankaappinu og innan tíðar verður einnig hægt að framkvæma fullgildar rafrænar undirritanir. Það hentar einkum þegar þú ert í netsambandi en ekki í símasambandi eða ert með erlent farsímanúmer.
14. júní 2024
Do logowania można używać aplikacji Auðkenni
Zwracamy uwagę na fakt, iż do logowania można używać aplikacji Auðkenni, jaki i do identyfikacji w bankowości elektronicznej i aplikacji bankowej. Ponadto niebawem będzie można składać kwalifikowane podpisy elektroniczne. Może to być szczególnie przydatne, gdy będziesz miał(a) dostęp do Internetu, ale nie będziesz miał(a) zasięgu sieci telefonicznej lub w przypadku zagranicznego numeru telefonu komórkowego.
Grænland
12. júní 2024
Fjárfestadagur Amaroq Minerals
Fjárfestadagur Amaroq Minerals verður í húsnæði Landsbankans í Reykjastræti 6, fimmtudaginn 13. júní kl. 14.00-16.00. Húsið opnar kl. 13.30 og að fundi loknum verður boðið upp á drykki og léttar veitingar.
Netöryggi
10. júní 2024
Vörum við svikatilraunum í tölvupósti
Við vörum við tölvupósti sem sendur er í nafni Landsbankans. Í póstinum er sagt að reikningi viðtakanda hjá bankanum hafi verið lokað og fólk beðið um að smella á hlekk til að skrá sig inn. Með þessu vilja svikararnir fá fólk til að gefa upp innskráningarupplýsingar.
Námsstyrkir 2024
3. júní 2024
Bankinn úthlutar námsstyrkjum að upphæð 8 milljónir króna
Landsbankinn úthlutaði námsstyrkjum til sextán námsmanna úr Samfélagssjóði bankans þann 31. maí. Styrkirnir voru veittir í þrítugasta og fimmta skipti og heildarupphæð námsstyrkjanna nemur átta milljónum króna. Alls bárust um 400 umsóknir í ár.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur