Græn fjármögnun – velferð til framtíðar

„Money makes the world go round“
…mætti kannski útleggja sem „fjármagn er til alls fyrst“. Sjálfbær þróun krefst að sjálfsögðu meira af okkur en bara peninga, en þeir eru engu að síður ansi mikilvægir. Græn fjármögnun virkar þannig að banki eins og Landsbankinn gefur út græn skuldabréf sem fjárfestar kaupa. Það sem gerir skuldabréfin græn er að bankinn skuldbindur sig til þess að nota andvirðið af sölu þeirra til að fjármagna verkefni sem uppfylla skilyrði um að stuðla að sjálfbærri þróun. Með öðrum orðum, við lánum peningana sem við fáum af sölu grænna skuldabréfa einungis áfram í græn verkefni. Fyrir banka, sem starfar við að miðla fjármagni, er einsýnt að þetta er góð leið til að hafa mikil jákvæð áhrif.
Sjálfbær fjármálaumgjörð tryggir efndir og gagnsæi
En hver ræður hvað telst sjálfbært og hvernig geta fjárfestar vitað að Landsbankinn beinir peningunum þeirra áfram í græn og góð verk? Jú, við gefum opinberlega út svokallaða sjálfbæra fjármálaumgjörð þar sem við skilgreinum hvaða verkefni teljast hæf til að hljóta græna fjármögnun. Skilyrðin eru heldur ekki úr lausu lofti gripin, heldur byggja á viðmiðum Alþjóðasamtaka aðila á verðbréfamarkaði (ICMA) og flokkunarreglugerð Evrópusambandsins (EU Taxonomy) um græna og félagslega fjármögnun. Við erum einnig með álit frá óháðum alþjóðlegum matsaðila á fjármálaumgjörðinni (Sustainalytics) og gefum árlega út úthlutunar- og áhrifaskýrslur til staðfestingar á því hvernig grænu fjármagni er varið og hvaða áhrif slíkar fjárfestingar hafa á sjálfbæra þróun.
Almannahagsmunir, hagnaður, heimurinn og hagsæld
En hvað græði ég á þessu? gæti einhver spurt. Háfleygt en engu að síður hreinskilið svar er: farsæla framtíð. Sjálfbærni vísar í samþættingu fjögurra meginstoða sem eru almannahagsmunir, hagnaður, heimurinn og hagsæld (e. people, profit, planet, prosperity). Auðlindir jarðar eru takmarkaðar og auðlindanotkun getur ekki farið út fyrir þau endanlegu mörk sem náttúran setur án þess að skaða almannahagsmuni til framtíðar. Hagnaður og hagsæld til framtíðar eru að sama skapi bundin við ábyrga nýtingu auðlinda heimsins – ef við klárum þær í dag græðum við hvorki á þeim né njótum þeirra á morgun. Það er engra hagur.
Betri saman
Græn fjármögnun er ein af leiðunum sem Landsbankinn hefur valið að fara til að beita sér á sem áhrifaríkastan hátt fyrir sjálfbærni. En það þarf ekki að eiga margar milljónir til að taka þátt. Þú getur haft áhrif með því að fjárfesta í grænum vörum, eins og sjóðum eða sparireikningum sem byggja á sjálfbærri fjármálaumgjörð. Þú getur líka kosið með veskinu og verslað við fyrirtæki sem beita sér í sjálfbærnimálum. Við erum betri saman.


