Efna­hags­horf­ur og hækk­andi fast­eigna­verð

1. október 2021 - Greiningardeild

Í hlaðvarpinu er rætt um efnahagshorfur, þróun á fjármálamörkuðum og fasteignamarkaðinn. Meðal annars er komið inn á mikið líf á innlendum hlutabréfamarkaði, hækkandi fasteignaverð sem drífur verðbólguna áfram, breytt neyslumynstur ferðamanna og að Hagfræðideild bankans geri ráð fyrir hækkun stýrivaxta um 0,25 prósentustig við næstu stýrivaxtaákvörðun. Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum, Una Jónsdóttir, sérfræðingur í fasteignamarkaðnum og Dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar, taka þátt í umræðunum ásamt Rún Ingvarsdóttur, sérfræðingi í Markaðs-og samskiptadeild bankans.

Um hlaðvarpið

Umræðan: hlaðvarp er vettvangur þar sem verðbréfagreinendur í Landsbankanum og sérfræðingar í Hagfræðideild bankans ræða um hlutabréfamarkaðinn og efnahagsmál frá ýmsum hliðum og á mannamáli. Tilgangurinn er að auka áhuga og umræðu um hlutabréfamarkaði og efnahagsmál.

Þú gætir einnig haft áhuga á
17. okt. 2024
Það helsta úr nýrri hagspá
Horfurnar eru nokkuð bjartar, samkvæmt nýrri hagspá Landsbankans, þrátt fyrir lítils háttar samdrátt á þessu ári. Með hjaðnandi verðbólgu og auknum slaka á vinnumarkaði skapast svigrúm til áframhaldandi vaxtalækkana sem blása lífi í hagkerfið.
23. ágúst 2024
Hæg kólnun og harður tónn
Eftir heilt ár af óbreyttu vaxtastigi virðist enn bið eftir að hægt verði að slaka á aðhaldinu. Verðbólga færðist lítillega í aukana í sumar, íbúðaverð hefur haldið áfram að hækka og kortavelta landsmanna hefur aukist milli ára að raunvirði. Staðan er snúin og væntingar um verðbólguþróunina eru enn langt yfir markmiði. Þetta er á meðal þess sem er til umræðu í nýjasta hlaðvarpsþætti Umræðunnar.
12. júní 2024
Þarftu að endurfjármagna?
Fjölmargir lántakendur standa frammi fyrir því að fastir vextir á íbúðalánum þeirra eru að losna og horfa fram á að taka ákvörðun um hvað skuli gera næst.
4. júní 2024
Aukin verðbólga og 4% samdráttur
Verðbólga var umfram spár í maí og jókst milli mánaða. Hagkerfið dróst saman um 4% á fyrsta ársfjórðungi og þar með varð samdráttur í fyrsta sinn síðan í byrjun árs 2021.
3. maí 2024
Hagspá - Þrautseigt hagkerfi við háa vexti
Hagfræðideild spáir því í nýrri hagspá að enn sé þó nokkur bið eftir fyrstu vaxtalækkun. Verðbólgan hjaðni smám saman á næstu árum og efnahagsumsvif aukist eftir því sem vextir lækka.
21. mars 2024
Lengist biðin eftir vaxtalækkun?
Seðlabankinn hélt vöxtum óbreyttum á miðvikudag og sló harðari tón en búist var við. Markaðsaðilar gerðu flestir ráð fyrir að vaxtalækkunarferli gæti hafist í maí, en lengist biðin kannski fram í haust? Hvað þarf að gerast áður en hægt verður að slaka á taumhaldinu?
Umræðan
15. feb. 2024
Stormasamt stjórnmálaár og varkár vaxtalækkun
James Ashley, forstöðumaður markaða og stefnumála í Goldman Sachs, er gestur í nýjasta þætti Umræðunnar. Hann ræðir efnahagshorfur í heiminum, óvissuþætti í tengslum við komandi kosningar í Bandaríkjunum og ólgu í alþjóðastjórnmálum.
Hlaðvarp
2. feb. 2024
Vaxtalækkun ólíkleg þótt verðbólga hjaðni
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að vöxtum verði haldið óbreyttum í næstu viku. Þótt verðbólguhorfur hafi batnað stígi peningastefnunefnd varlega til jarðar, ekki síst í ljósi óvissu í tengslum við náttúruhamfarir og kjaraviðræður.
Hlaðvarp
8. des. 2023
Íbúðaverð á uppleið en hægir á hagvexti
Verðbólguhorfur hafa versnað lítillega á síðustu vikum. Seðlabankinn hefur haldið stýrivöxtum óbreyttum í vetur, íbúðaverð er aftur á uppleið en hagvöxtur er mun minni en í upphafi árs. Hagfræðideildin ræðir þetta og fleira í nýjasta hlaðvarpsþættinum.
Hlaðvarp
19. okt. 2023
Spjall um spá: Hagkerfi í leit að jafnvægi
Hófstilltur hagvöxtur, háir vextir og hjaðnandi verðbólga. Þetta er á meðal þess sem einkennir efnahaginn næstu ár, samkvæmt nýrri hagspá Hagfræðideildar bankans. Í nýjasta þætti Umræðunnar ræða hagfræðingarnir Hildur Margrét Jóhannsdóttir og Hjalti Óskarsson efnahagshorfurnar og fara yfir það helsta úr spánni.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur