Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Brunatrygging

Bruna­trygg­ing

Ef þú ert fast­eigna­eig­andi þarft þú lög­um sam­kvæmt að hafa bruna­trygg­ingu en hún bæt­ir tjón á hús­næði í kjöl­far elds­voða.

Tryggingarfjárhæðin er í samræmi við brunabótamat fasteignarinnar sem unnið er af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Sé fasteignin talin verðmætari en brunabótamat segir til um getur þú einnig keypt viðbótarbrunatryggingu.  

  • Lögbundin brunatrygging greiðir aðeins bætur samkvæmt mati Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
  • Ef endurbætur hafa átt sér stað eða byggt hefur verið við eigninga er skynsamlegt að láta endurmeta brunabótamat.
  • Algengt er að sólpallar séu ekki hluti af brunabótamati þar sem matið hefur oft átt sér stað fyrir byggingartíma þeirra. 

Hvað bætir tryggingin?

  • Tjón vegna eldsvoða, eldinga, sótfalls eða sprenginga.
  • Tjón af völdum loftfars.
  • Kostnað vegna slökkvi- og björgunaraðgerða, niðurrifs eða annarra réttmætra aðgerða til að afstýra eða draga úr tjóni.

Hvað bætir tryggingin ekki?

  • Tjón á innbúi.
  • Óbeint tjón svo sem rekstrartap eða tap húsaleigutekna.
  • Tjón vegna elds sem er ekki eldsvoði, svo sem tjón á munum sem verða fyrir eldi eða hita við suðu, upphitun eða reykingu.

Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?

  • Tryggingarfjárhæðin takmarkast við brunabótamat.

Algengar spurningar

Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.

Nánari upplýsingar

Tryggingarnar eru veittar af TM tryggingum hf. (TM). Landsbankinn hf. er skráður vátryggingaumboðsmaður hjá TM samkvæmt lögum nr. 62/2019 og annast dreifingu og sölu trygginganna.

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.