Heimilið
Heima á að vera best
Griðastað fjölskyldunnar er mikilvægt að vernda svo öllum líði vel. Víðtækar heimilistryggingar veita þér og þínum mikilvæga hugarró.

Heimilistryggingarnar eru fjórar talsins og er þeim skipt niður eftir umfangi og bótafjárhæðum. Mismunandi valkostir gera þér kleift að setja saman vernd sem hentar þér og fjölskyldunni best.

Hér færð þú alhliða vernd fyrir fasteignina þína. Heimilið þitt er í öruggum höndum með húseigendatryggingu.

Fasteignaeigendum er skylt að hafa brunatryggingu en ef talið er að endurbætur vegna tjóns yrðu kostnaðarsamari en brunabótamat segir til um má einnig kaupa viðbótarbrunatryggingu.

Gættu þess að athvarf þitt í sveitinni sé í öruggum höndum. Þú getur sett saman sumarhúsatryggingu sem mætir þínum þörfum.

Stakar lausafjártryggingar henta vel fyrir verðmæt listaverk, skartgripi, hljóðfæri, ljósmyndabúnað og einnig innbú utan heimilis, heita potta, skjólpalla og annað slíkt sem tryggja þarf sérstaklega.

Húsbyggjendatrygging tryggir bæði heimili í smíðum og þau sem vinna að því. Gerðu draumaheimilið þitt tilbúið án þess að stressa þig á mögulegu tjóni.

Það getur verið gott að tryggja búslóðina áður en henni er raðað í flutningabílinn og til að halda á vit nýrra ævintýra.
Fríðindi fyrir þig
Það er auðvelt að fá afsláttinn. Þú sýnir TM appið eða yfirlit trygginga í Landsbankaappinu þegar viðskipti eiga sér stað.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.
