Á þeim byggingarstað og fyrir þá húseign sem tilgreind er á skírteini.
Húsbyggjendatrygging
Tryggjum ferlið og fólkið
Gerðu draumaheimilið tilbúið án þess að stressa þig á mögulegu tjóni - húsbyggjendatrygging tryggir bæði heimili í smíðum og þau sem vinna að því.
Húsbyggjendatrygging er sérsniðin fyrir þau sem eru að byggja sitt eigið heimili. Hún tekur til húseignar eða hluta hennar sem er í smíðum en einnig byggingarefna, verkfæra, áhalda, vinnupalla og vinnuskúra. Þá felur hún einnig í sér slysatryggingu og ábyrgðartryggingu húseiganda.
- Innifalin er slysatrygging fyrir fjölskyldu og vini sem vinna við húseignina.
- Trygging fyrir skaðabótaskyldu sem fallið getur á eiganda vegna húseignar í smíðum.
Hvað bætir tryggingin?
- Vatnstjón.
- Brot á rúðugleri.
- Innbrot.
- Fok og óveður.
- Brot og hrun.
- Sótfall.
- Slys á byggingarstað.
- Skaðabótaábyrgð húseiganda.
Hvað bætir tryggingin ekki?
- Utanaðkomandi vatn.
- Stífla í frárennslislögnum utanhúss.
- Sá hluti húseignar sem olli tjóni, t.d. sjálf rörin í húsinu, er aldrei bættur.
- Slys sem iðnmeistarar, verktakar eða starfsfólk þeirra verða fyrir.
- Tjón vegna rangrar eða ófullkominnar hönnunar eða útreikninga.
- Tjón vegna notkunar á röngu eða gölluðu efni.
- Afleitt tjón.
Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?
- Tryggingarfjárhæðin er ákveðin út frá áætluðum heildarbyggingarkostnaði ásamt verðmæti lausafjár.
Algengar spurningar
Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.
