Samkvæmt samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins er stjórn sjóðsins skipuð fimm mönnum, fjórum kosnum af sjóðfélögum og einum skipuðum af bankaráði Landsbankans. Í varastjórn eru þrír menn, tveir kosnir af sjóðfélögum og einn skipaður af Landsbankanum. Að þessu sinni verður kosið um tvo aðalmenn og einn varamann.
Framboðum aðalmanna bar að skila inn til stjórnar viku fyrir ársfund. Tvö framboð bárust og er því sjálfkjörið í aðalstjórn.
Frambjóðendur í kjöri til aðalmanns í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins 28. apríl 2017:
- Atli Atlason, viðskiptafræðingur.
- Þórir Óskarsson, tryggingastærðfræðingur.
Kynning á frambjóðendum
Atli Atlason f. 1966
Viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1992. Lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands 1986. Starfaði sem forstöðumaður fjármála- og rekstrarsviðs Fiskistofu 1992-1999, forstöðumaður starfmannahalds Búnaðarbankans 1999-2003, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Landsbanka Íslands hf. 2003-2008 og framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Landsbankans 2008-2010. Starfar nú sem deildarstjóri kjaradeildar hjá Reykjavíkurborg. Hefur setið í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins frá október 2009, sem varaformaður stjórnar frá maí 2011 og formaður stjórnar frá febrúar 2013.
Þórir Óskarsson f. 1976
Forstöðumaður áhættustýringar hjá Vátryggingafélagi Íslands. Lauk B.Sc. prófi í stærðfræði frá HÍ árið 2000 og stundaði nám í tryggingastærðfræði við Kaupmannahafnarháskóla 2003 til 2006 og lauk Cand. Act. prófi þaðan haustið 2006. Hann hlaut viðurkenningu FME sem tryggingastærðfræðingur 5. janúar 2009 og var sá fyrsti í 10 ár til að hljóta þá viðurkenningu. Starfaði sem tryggingastærðfræðingur hjá dönsku tryggingafélagi 2006-2009. Gjaldkeri í Barna- og Unglingaráði knattspyrnudeildar Þróttar frá 2012. Í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins frá október 2009 auk þess að sitja í endurskoðunarnefnd sjóðsins, formaður nefndarinnar frá 2011.









