Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Breyt­ing á dags­lok­um banka­daga

Snjallsími
3. september 2025

Frá og með 8. september 2025 verða dagslok bankadaga í innlánakerfum Reiknistofu bankanna færð frá kl. 21.00 til miðnættis. Þetta hefur m.a. þau áhrif að millifærslur sem eru gerðar eftir kl. 21.00 og fram að miðnætti verða bókaðar sama dag.

Bankadagar verða áfram virkir dagar og færslur sem berast á frídögum verða áfram bókaðar á næsta virka degi.

Í tilkynningu frá RB kemur fram að markmiðið með þessari breytingu sé að koma enn betur til móts við nútíma viðskiptahætti með því samræma dagslok bankadaga við almanaksdaga og styðja þannig við sveigjanlegri opnunartíma og samfellda þjónustu. 

Breytingin mun nýtast almenningi, fyrirtækjum og stofnunum sem treysta á hraða og áreiðanlega afgreiðslu bankaviðskipta á kvöldin.

Við hvetjum viðskiptavini og samstarfsaðila til að kynna sér áhrif breytingarinnar á þeirra viðskipti og hafa samband við okkur ef frekari upplýsinga er þörf.

Þú gætir einnig haft áhuga á
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.