Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Sam­ið um nýtt hús­næði fyr­ir Lands­bank­ann á Ak­ur­eyri

28. júní 2023

Landsbankinn á Akureyri mun flytja sig yfir í Hofsbót 2-4 á Akureyri fyrir árslok 2024, samkvæmt langtímaleigusamningi sem gerður hefur verið við eigendur húsanna.

Um er að ræða húsnæði sem er í byggingu að Hofsbót 2 og einnig hluta jarðhæðar Hofsbótar 4, en húsin eru aðeins steinsnar frá núverandi húsakynnum bankans. Nýja húsnæðið er samtals um 600 fermetrar að stærð.

Útibúið á Akureyri er ein af kjarnastarfstöðvum bankans og þar vinna nú um 30 manns. Flest vinna í útibúinu sjálfu en einnig er þar stórt þjónustuver sem þjónar viðskiptavinum um allt land. Nýja húsnæðið er mun hagkvæmara í rekstri og hentar betur undir starfsemina.

Landsbankinn bauð gamla Landsbankahúsið við Ráðhústorg til sölu í fyrrahaust og tók í kjölfarið tilboði hæstbjóðanda. Gamla húsið er 2.300 fermetrar að stærð.

Tölvuteiknaða myndin sýnir húsið sem er í byggingu að Hofsbót 2.

Þú gætir einnig haft áhuga á
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.