Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Fyrsta víkj­andi skulda­bréfa­út­gáfa í krón­um

Landsbankinn hefur lokið útboði á víkjandi skuldabréfum í krónum að fjárhæð 5,5 milljarðar króna. Útgáfan fellur undir 50 milljarða útgáfuramma bankans fyrir víxla og skuldabréf.
5. febrúar 2020

Skuldabréfin eru verðtryggð og eru til tíu ára en innkallanleg að fimm árum liðnum. Skuldabréfaútgáfan var fyrsta víkjandi útgáfa bankans í íslenskum krónum.

Landsbankinn hefur lokið útboði á víkjandi skuldabréfum í krónum að fjárhæð 5,5 milljarðar króna. Útgáfan fellur undir 50 milljarða útgáfuramma bankans fyrir víxla og skuldabréf. Skuldabréfin eru verðtryggð og eru til tíu ára en innkallanleg að fimm árum liðnum. Skuldabréfaútgáfan var fyrsta víkjandi útgáfa bankans í íslenskum krónum.

Tilboð í útboðinu voru 26 talsins og námu samtals 8.560 m. kr. að nafnverði. Fimm tilboð að fjárhæð 900 m. kr. að nafnverði bárust í óverðtryggða flokkinn LBANK T2 29 á ávöxtunarkröfu á bilinu 6,60%-6,90%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn. 21 tilboð að fjárhæð 7.660 m. kr. að nafnverði bárust í verðtryggða flokkinn LBANK T2I 29 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,69%-4,00%. Tilboðum að fjárhæð 5.520 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,85%.

Þú gætir einnig haft áhuga á
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.