Fréttir

Bríet, Hug­inn og Kæl­an mikla á Ice­land Airwaves-vef Lands­bank­ans

Landsbankinn hitar upp fyrir Iceland Airwaves með því að birta ný myndbönd og viðtöl við ungt tónlistarfólk á Iceland Airwaves-vef bankans. Að þessu sinni stendur bankinn að útgáfunni í samvinnu við Hugin, Bríeti og hljómsveitina Kæluna Miklu
18. október 2018

Landsbankinn hitar upp fyrir Iceland Airwaves með því að birta ný myndbönd og viðtöl við ungt tónlistarfólk á Airwaves-vef bankans. Að þessu sinni stendur bankinn að útgáfunni í samvinnu við Hugin, Bríet og hljómsveitina Kæluna miklu.

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves verður haldin dagana 7. - 10. nóvember í miðborg Reykjavíkur. Landsbankinn hefur verið einn af aðalbakhjörlum hátíðarinnar frá árinu 2014. Í tengslum við hátíðina heldur bankinn úti vefnum landsbankinn.is/icelandairwaves og þar hafa verið birt myndbönd og viðtöl við unga og upprennandi tónlistarmenn í gegnum árin. Á vefnum er hægt að fá forsmekkinn að einni stærstu tónlistarhátíð ársins og sjá dæmi um þá miklu grósku sem er í íslensku tónlistarlífi.

Off-venue tónleikar

Landsbankinn mun einnig standa að svokölluðum Off-venue tónleikum í tengslum við hátíðina.

Dagskrá:

Stúdentakjallarinn, fimmtudagurinn 8. nóvember

Kl. 17.00 – Bríet

Kl. 17.30 - Huginn

Kl. 18.00 - Kælan Mikla

Landsbankinn, Austurstræti 11, laugardagurinn 10. nóvember

Kl. 15.30 – Huginn

Kl. 16.00 - Bríet

Kl. 16.30 – Aron Can

Þú gætir einnig haft áhuga á
Menningarnótt 2023
9. júlí 2024
24 verkefni fá úthlutað úr Menningarnæturpottinum
Í ár fá 24 spennandi verkefni styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans og Reykjavíkurborgar. Verkefnin miða meðal annars að því að færa borgarbúum myndlist, tónlist og fjölbreytta listgjörninga, bæði innan- og utandyra.
Austurbakki
5. júlí 2024
Fyrirtækjaráðgjöf verður ráðgjafi fjármálaráðuneytisins vegna sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa við skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eftirstandandi eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf.
Björn A. Ólafsson
4. júlí 2024
Björn Auðunn Ólafsson til liðs við Landsbankann
Björn Auðunn Ólafsson hefur gengið til liðs við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og hefur hann þegar hafið störf.
Landsbankinn.pl
3. júlí 2024
Meiri upplýsingar á pólsku á landsbankinn.pl
Við höfum bætt við pólskri útgáfu af Landsbankavefnum, til viðbótar við íslenska og enska útgáfu. Á pólska vefnum eru upplýsingar um appið okkar, greiðslukort, gengi gjaldmiðla, viðbótarlífeyrissparnað, rafræn skilríki, Auðkennisappið og fleira.
2. júlí 2024
Enn meira öryggi í Landsbankaappinu
Við höfum bætt stillingarmöguleikum við Landsbankaappið sem auka enn frekar öryggi í korta- og bankaviðskiptum. Nú getur þú með einföldum hætti lokað fyrir tiltekna notkun á greiðslukortum í appinu og síðan opnað fyrir þær aftur þegar þér hentar. Ef þörf krefur getur þú valið neyðarlokun og þá er lokað fyrir öll kortin þín og aðgang að appi og netbanka.
Arinbjörn Ólafsson og Theódór Ragnar Gíslason
20. júní 2024
Landsbankinn og Defend Iceland vinna saman að netöryggi
Landsbankinn og netöryggisfyrirtækið Defend Iceland hafa gert samning um aðgang að hugbúnaði villuveiðigáttar fyrirtækisins til að auka og styrkja varnir gegn árásum á net- og tölvukerfi Landsbankans.
14. júní 2024
Hægt að nota Auðkennisappið við innskráningu
Við vekjum athygli á að hægt er að nota Auðkennisappið til að skrá sig inn og til auðkenningar í netbankanum og Landsbankaappinu og innan tíðar verður einnig hægt að framkvæma fullgildar rafrænar undirritanir. Það hentar einkum þegar þú ert í netsambandi en ekki í símasambandi eða ert með erlent farsímanúmer.
14. júní 2024
Do logowania można używać aplikacji Auðkenni
Zwracamy uwagę na fakt, iż do logowania można używać aplikacji Auðkenni, jaki i do identyfikacji w bankowości elektronicznej i aplikacji bankowej. Ponadto niebawem będzie można składać kwalifikowane podpisy elektroniczne. Może to być szczególnie przydatne, gdy będziesz miał(a) dostęp do Internetu, ale nie będziesz miał(a) zasięgu sieci telefonicznej lub w przypadku zagranicznego numeru telefonu komórkowego.
Grænland
12. júní 2024
Fjárfestadagur Amaroq Minerals
Fjárfestadagur Amaroq Minerals verður í húsnæði Landsbankans í Reykjastræti 6, fimmtudaginn 13. júní kl. 14.00-16.00. Húsið opnar kl. 13.30 og að fundi loknum verður boðið upp á drykki og léttar veitingar.
Netöryggi
10. júní 2024
Vörum við svikatilraunum í tölvupósti
Við vörum við tölvupósti sem sendur er í nafni Landsbankans. Í póstinum er sagt að reikningi viðtakanda hjá bankanum hafi verið lokað og fólk beðið um að smella á hlekk til að skrá sig inn. Með þessu vilja svikararnir fá fólk til að gefa upp innskráningarupplýsingar.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur