Fasteignagrunnur
Fasteignagrunnur
Fasteignagrunnur er óverðtryggður sparireikningur fyrir viðskiptavini sem eru á aldrinum 15 til 35 ára. Hver innborgun er bundin í 12 mánuði og er laus eftir þann tíma.
Ef þú skráir reglubundinn sparnað á reikninginn verða allar innborganir lausar á sama tíma 12 mánuðum eftir að fyrsta innborgun er lögð inn. Ef haldið er áfram að greiða inn á reikninginn eftir að 12 mánaða binditíma lýkur hefst nýtt 12 mánaða tímabil í bindingu.
- Bundinn til 18 ára aldurs
- Óverðtryggður
- Vextir greiðast árlega
- Skilmálar (PDF)
Reiknaðu út sparnaðinn
Reiknaðu hve mikið þú þarft að leggja fyrir á mánuði, í hve langan tíma eða hvað þú munir eiga mikið í lok sparnaðartímabils.
Það er einfalt að byrja að spara
Með reglulegum sparnaði í netbankanum þarft þú ekki að muna eftir því að leggja til hliðar. Upphæðin þarf ekki að vera há en margt smátt gerir eitt stórt.
![Móðir með börn við bíl](https://images.prismic.io/landsbankinn/aac74069-d245-4b02-b5e1-ac444206af6b_1920px+LB_Eilifsdalur_RIM0943_01.jpg?fit=max&w=3840&rect=639,0,1281,1281&q=50)
Sjálfvirkar millifærslur
Þú ákveður upphæðina, hvenær skal millifæra og velur sparnaðarreikninginn. Sparnaðurinn verður þá framkvæmdur sjálfkrafa í hverjum mánuði.
![Greiðsla](https://images.prismic.io/landsbankinn/f68172e8-1904-4001-9a2c-63c96fb2ffe2_LB_Greidslumidlun_detail1304.jpg?fit=max&w=3840&rect=41,0,1311,1311&q=50)
Sparað með kortanotkun
Viltu spara ákveðna upphæð við hverja notkun á debet- eða kreditkortinu þínu? Hægt er að hækka hverja færslu um ákveðna upphæð eða upp í næsta hundrað eða þúsund.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.
![](https://images.prismic.io/landsbankinn/f96ff806-7ba6-4a9b-854d-e52b3576ec1e_2845.jpg?fit=max&w=3840&rect=445,0,1440,1080&q=50)