Leiðrétting persónuupplýsinga

Beiðni um leiðréttingu persónuupplýsinga

Persónuverndarlögin veita þér rétt til að krefjast þess að óáreiðanlegar eða ófullgerðar persónuupplýsingar er varða þig verði leiðréttar. Teljir þú að Landsbankinn vinni með persónuupplýsingar um þig sem eru rangar eða óáreiðanlegar getur þú óskað eftir að upplýsingar þínar verði leiðréttar.

Þú getur sent bankanum uppfærðar upplýsingar um þig hér og í kjölfarið mun Landsbankinn uppfæra persónuupplýsingar þínar reynist þær óáreiðanlegar eða ófullgerðar.

Einnig getur þú haft samband við þjónustufulltrúa bankans eða leiðrétt grunnupplýsingar eins og netfang og símanúmer í netbanka þínum.

Beiðni um leiðréttingu

Til að óska eftir leiðréttingu upplýsinga þarftu að skrá þig inn með rafrænum skilríkjum í síma.

Afgreiðsla beiðna

Bankinn mun upplýsa þig um aðgerðir sem gripið er til vegna beiðni þinnar um aðgang að persónuupplýsingu, innan mánaðar frá viðtöku hennar. Svo unnt sé að afgreiða aðgangsbeiðnina er bankanum nauðsynlegt að afla persónuupplýsinga um þig til að tryggja auðkenningu og vinna úr beiðninni.

Skýrslur með persónuupplýsingum umsækjenda eru aðgengilegar undir rafrænum skjölum í netbanka Landsbankans í 90 daga. Að þeim tíma loknum er skýrslum eytt í samræmi við meðalhófskröfu personuverndarlaga.

Verði Landsbankinn ekki við beiðni þinni getur þú lagt fram kvörtun hjá persónuverndarfulltrúa bankans eða hjá Persónuvernd.

Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur