Flutningur eigin persónuupplýsinga

Beiðni um flutning eigin persónuupplýsinga

Persónuverndarlögin veita þér rétt til þess að Landsbankinn flytji tilteknar persónuupplýsingar, sem varða þig, beint til annarra fyrirtækja eða stofnana ef það er tæknilega framkvæmanlegt. Beiðni um flutning persónuupplýsinga til annars aðila á einungis við um upplýsingar sem:

Þú hefur sjálfur afhent Landsbankanum með samþykki þínu eða ef þær eru unnar vegna framkvæmdar samnings milli þín og bankans.
Persónuupplýsingarnar eru unnar á sjálfvirkan hátt hjá bankanum.

Aðgangur að persónuupplýsingum

Enn sem komið er hefur ekki verið útfærð sérstök tæknilausn sem gerir Landsbankanum kleift að flytja persónuupplýsingar þínar beint til annars lögaðila. Af þeim sökum mun bankinn flytja framangreindar persónuupplýsingar beint til einstaklings sem óskar eftir flutningi, sem í kjölfarið getur afhent öðrum lögaðilum afrit upplýsinganna.

Vakin er athygli á því að flutningur persónuupplýsinga má ekki skerða réttindi og frelsi annarra þriðju aðila og eftir atvikum getur bankinn þurft að strika út persónuupplýsingar um óviðkomandi aðila ef finna má persónuupplýsingar um þá í umbeðnum gögnum.

Afgreiðsla beiðna

Bankinn mun upplýsa þig um aðgerðir sem gripið er til vegna beiðni þinnar um aðgang að persónuupplýsingu, innan mánaðar frá viðtöku hennar. Svo unnt sé að afgreiða aðgangsbeiðnina er bankanum nauðsynlegt að afla persónuupplýsinga um þig til að tryggja auðkenningu og vinna úr beiðninni.

Skýrslur með persónuupplýsingum umsækjenda eru aðgengilegar undir rafrænum skjölum í netbanka Landsbankans í 90 daga. Að þeim tíma loknum er skýrslum eytt í samræmi við meðalhófskröfu personuverndarlaga.

Verði Landsbankinn ekki við beiðni þinni getur þú lagt fram kvörtun hjá persónuverndarfulltrúa bankans eða hjá Persónuvernd.

Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur