Að­al­fund­ur Lands­bank­ans 22. apríl 2020

Aðalfundur Landsbankans hf. verður haldinn miðvikudaginn 22. apríl 2020 kl. 13.00. Fundinn átti upphaflega að halda 27. mars 2020 en honum var frestað vegna útbreiðslu Covid-19.
Höfuðstöðvar Landsbankans Austurstræti 11
3. apríl 2020 - Landsbankinn

Drög að dagskrá

  1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans síðastliðið starfsár.
  2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda lagður fram til staðfestingar.
  3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á næstliðnu reikningsári.
  4. Tillaga bankaráðs um starfskjarastefnu lögð fram til samþykktar.
  5. Tillögur til breytinga á samþykktum.
  6. Kosning bankaráðs.
  7. Kosning endurskoðanda.
  8. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir næsta kjörtímabil.
  9. Heimild til kaupa á eigin hlutum.
  10. Önnur mál.

Áhrif samkomubanns á mætingu á fundinn

Í ljósi útbreiðslu Covid-19 og ákvörðunar heilbrigðisráðherra um samkomubann beinir bankaráð því til hluthafa að mæta ekki á fundarstað. Gert er ráð fyrir að einungis bankastjóri, formaður bankaráðs og endurskoðandi ásamt starfsfólki fundarins verði viðstödd á fundarstað. Hluthafar geta tekið þátt í skriflegri atkvæðagreiðslu um tillögur á fundinum fyrirfram.

Nánari upplýsingar um aðalfund Landsbankans

Þú gætir einnig haft áhuga á
Austurbakki
19. mars 2025
Niðurstöður aðalfundar Landsbankans 2025
Aðalfundur Landsbankans, sem haldinn var 19. mars 2025, samþykkti að greiða 18.892 milljónir króna í arð til hluthafa.
Austurbakki
5. mars 2025
Aðalfundur Landsbankans 2025
Aðalfundur Landsbankans verður haldinn miðvikudaginn 19. mars 2025 kl. 16.00 í Reykjastræti 6, Reykjavík.
28. feb. 2025
Landsbankinn og TM eru betri saman!
Uppgjör og afhending vegna kaupa Landsbankans á TM tryggingum hf. af Kviku banka fór fram í dag og hefur Landsbankinn tekið við rekstri félagsins. TM verður rekið sem dótturfélag Landsbankans.
Austurbakki
21. feb. 2025
Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup Landsbankans á TM
Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Landsbankans á öllu hlutafé í TM tryggingum hf. með gerð sáttar milli bankans og eftirlitsins.
Austurbakki
13. feb. 2025
Opnu söluferli á hlut í Kea-hótelum lokið án sölu
Opnu söluferli á 35% eignarhlut Hamla ehf. sem er dótturfélags Landsbankans, í hótelkeðjunni Keahótelum ehf. er lokið, án þess að samningar hafi náðst um sölu.
Hjón úti í náttúru
13. feb. 2025
Árs- og sjálfbærniskýrsla Landsbankans komin út
Árs- og sjálfbærniskýrsla Landsbankans fyrir árið 2024 er komin út. Í skýrslunni er fjallað um þróun og breytingar á þjónustu bankans, árangur í rekstri, trausta fjármögnun og áhættustjórnun, jákvæð áhrif bankans á samfélagið og ýmislegt fleira.
Austurbakki
11. feb. 2025
Landsbankinn gefur út AT1 verðbréf
Landsbankinn lauk í dag sölu verðbréfa sem telja til viðbótar eiginfjárþáttar 1 (e. Additional Tier 1 securities (AT1)), að fjárhæð 100 milljónir bandaríkjadala. Um er að ræða fyrstu AT1 útgáfu Landsbankans og voru bréfin seld til fjárfesta á föstum 8,125% vöxtum.
Austurbakki
30. jan. 2025
Uppgjör Landsbankans fyrir árið 2024
Hagnaður Landsbankans á árinu 2024 nam 37,5 milljörðum króna eftir skatta, samanborið við 33,2 milljarða króna árið áður.
Austurbakki
13. des. 2024
Góð kjör í útgáfu víkjandi skuldabréfa
Landsbankinn lauk í dag útboði víkjandi skuldabréfa sem teljast til eiginfjárþáttar 2 (e. Tier 2).
Austurbakki
23. okt. 2024
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2024
Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2024 nam 26,9 milljörðum króna eftir skatta, þar af 10,8 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi. Arðsemi eiginfjár var 11,7% samanborið við 10,5% á sama tímabili árið áður.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur