Tryggingin nær til ferðalaga í þeim heimshluta sem tilgreindur er á skírteini.
Ferðatrygging
Ferðatrygging
Ferðatrygging er samsett trygging. Hún getur verið samsett úr ferðaslysatryggingu, ferðasjúkratryggingu og farangurstryggingu.
Ef þú ætlar að fara í ferðalag á næstunni og ert ekki viss hvernig núverandi tryggingavernd þín er aðstoðum við þig gjarnan.
- VISA og MasterCard kreditkorthafar eru með ferðatryggingu innifalda í kortunum sínum.
- Hægt er að bæta ferðatryggingu við Heimatryggingapakka 2, 3 og 4 eftir á.
- Tryggingin gildir vegna orlofsferða fyrir þig, maka þinn og ógift börn sem búa á sama heimili og þú.
Hvað bætir tryggingin?
- Dánarbætur eru greiddar ef slys leiðir til andláts.
- Bætur eru greiddar vegna varanlegs líkamstjóns.
- Dagpeningar eru greiddir þegar slys veldur tímabundnum missi starfsorku.
- Tannbrot.
Hvað bætir tryggingin ekki?
- Slys sem orsakast af matar- eða drykkjareitrun.
- Slys sem verður í handalögmálum eða við þátttöku í refsiverðum verknaði.
- Slys vegna eitraðra lofttegunda.
- Tannbrot þegar þú matast.
Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?
- Slys sem verða í keppni eða við æfingar til undirbúnings fyrir keppni í hvers konar íþróttum eru ekki bætt.
- Tannbrot eru ekki bætt að því marki sem slíkt er bætt af opinberum tryggingastofnunum.
Algengar spurningar
Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.
