Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Forfallatrygging

Bú­umst við hinu óvænta

Ef þú þarft að hætta við ferð sök­um óvið­ráð­an­legra ástæðna bæt­ir for­falla­trygg­ing fjár­hagstjón­ið sem ann­ars hefði orð­ið.

Forfallatryggingu er hægt að kaupa sama dag og bókun og greiðsla farseðils fer fram. Tryggingin bætir þann hluta fargjalds og gistikostnaðar sem fæst ekki endurgreiddur ef þú getur ekki farið í ferðina vegna slysa eða veikinda.

  • Tryggingin hentar vel ef þú borgar ferðina ekki með kreditkorti eða ert ekki með ferðatryggingu innifalda í heimatryggingu.
  • Ef þú ert með forfallatryggingu innifalda í heimatryggingu er einnig hægt að kaupa viðbót við tryggingarfjárhæðina sem þegar er til staðar, sé það gert sama dag og bókun farseðils á sér stað.

Hvað bætir tryggingin?

  • Ferðakostnað ef þú kemst ekki í ferð vegna dauðsfalls, skyndilegs alvarlegs sjúkdóms eða slyss sem krefst þess að þú eða einhver þér nákominn, s.s. maki, foreldrar, barn eða barnabörn, þurfa á sjúkrahúsvist að halda.
  • Ferðakostnað ef þú kemst ekki í ferð vegna verulegs eignatjóns á Íslandi, annað hvort á heimili þínu eða í einkafyrirtæki sem gerir nærveru þína nauðsynlega.

Hvað bætir tryggingin ekki?

  • Tjón vegna meiðsla sem menn veita sjálfum sér vísvitandi.
  • Tjón sem verða vegna niðurfellingar eða seinkunar áætlunarferðar.
  • Tjón sem verða vegna sjúkdóms eða meðferðar sem hinn tryggði var haldinn þegar tryggingin var keypt.

Eru einhverjar sérstakar takmarkanir?

  • Ekki er greiddur sá hluti farseðils sem hinn tryggði á rétt á að fá endurgreiddan af ferðaskrifstofu/flugfélagi.

Algengar spurningar

Vakin er athygli á því að upptalningin hér fyrir ofan er ekki tæmandi heldur eru algeng og lýsandi atriði sett fram í þeim tilgangi að gefa þér góða mynd af tryggingunni í stuttu máli. Nákvæmari upplýsingar er að finna í skilmálum tryggingarinnar.

Nánari upplýsingar

Tryggingarnar eru veittar af TM tryggingum hf. (TM). Landsbankinn hf. er skráður vátryggingaumboðsmaður hjá TM samkvæmt lögum nr. 62/2019 og annast dreifingu og sölu trygginganna.

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.