Ferðatryggingar sem hluti af heimatryggingu
Ferðatryggingar sem hluti af heimatryggingu
Hægt er að kaupa ferðatryggingar sem viðbót við Heimatryggingu 2, 3 og 4. Um er að ræða sjúkrakostnaðar- og ferðarofstryggingu erlendis, farangurstryggingu, farangurstafatryggingu og forfallatryggingu.
- Ferðatrygging veitir þér aðgang að neyðarþjónustu SOS International um allan heim en starfsfólk þeirra er til taks á öllum tímum sólarhrings ef upp koma veikindi eða slys.
- Tryggingin gildir vegna orlofsferða fyrir þig, maka þinn og ógift börn sem hafa sama lögheimili og þú.
- Tryggingin gildir í 92 daga frá upphafi ferðar frá Íslandi.
Tryggingarnar eru veittar af TM tryggingum hf. (TM). Landsbankinn hf. er skráður vátryggingaumboðsmaður hjá TM samkvæmt lögum nr. 62/2019 og annast dreifingu og sölu trygginganna.
Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.
