Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Breyt­ing­ar á lög­um um líf­eyr­is­sjóði og tengd­um lög­um sem taka gildi um ára­mót

2. desember 2022

Breytingar á lögum lögum um lífeyrissjóði og öðrum tengdum lagabálkum sem kunna að hafa áhrif á sjóðfélaga Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands taka gildi um næstu áramót. Hér er yfirlit yfir helstu breytingar:

Skerðingar á greiðslum frá Tryggingastofnun (TR)

Frá og með næstu áramótum verður séreign sem stafar af lágmarksiðgjaldi (nú 15,5% en áður 12%) ekki lengur undanþegin skerðingum almannatrygginga. Framvegis mun því öll séreign sem hefur myndast af lágmarksiðgjaldi í lífeyrissjóð skerða greiðslur TR. Breytingin tekur gildi frá og með 1. janúar 2023. Engar skerðingar verða hjá þeim hópi sem eru þegar eru komnir á lífeyri frá TR eða hefja töku lífeyris frá TR fyrir næstu áramót.

Rétt er að taka fram að úttekt viðbótarlífeyrissparnaðar (eða séreignalífeyrissparnaðar, þar sem hlutur sjóðfélaga er allt að 4% og hlutur launagreiðanda 2%) mun sem fyrr ekki hafa áhrif á greiðslur frá TR.

Lágmarksiðgjald hækkar

Lágmarksiðgjald í lífeyrissjóð hækkar úr 12% í 15,5%. Aðilar sem áður greiddu 12% í lífeyrissjóð þurfa að greiða 15,5% frá og með næstu áramótum. Samkvæmt flestum kjarasamningum er framlag launþega 4% en laungreiðanda 11,5%. Breytingin nær því fyrst og fremst til sjálfstæðra atvinnurekenda og annarra sem taka ekki laun samkvæmt kjarasamningum.

Tilgreind séreign lögfest

Frá og með næstu áramótum verður svokölluð Tilgreind séreign lögfest. Á undanförnum árum hefur lífeyrissjóðum verið heimilt eru ráðstafa allt að 3,5% af launum til svokallaðar tilgreindrar séreignar. Hjá Lífeyrissjóði Tannlæknafélags Íslands rennur iðgjald sjóðfélaga sjálfkrafa í Frjálsa séreign og er því ekki tilgreind sérstaklega á yfirliti.

Nánari upplýsingar

Hafi sjóðfélagi lífeyrissjóðsins þegar hafið töku lífeyris frá TR þarf hann ekki að bregðast við framangreindum breytingum. Sjóðfélagar sem eru 60 ára eða eldri og eiga frjálsa séreign af skylduiðgjaldi eða bundna séreign eru hvattir til að kynna sér lagabreytingarnar og áhrif þeirra.

Nánari upplýsingar á vef Tryggingastofnunar

Nánari upplýsingar um lífeyrisparnað er að finna á vef Landsbankans og hjá Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Landsbankans í síma 410 40 40 eða í netfanginu vl@landsbankinn.is.

Þú gætir einnig haft áhuga á
New temp image
28. okt. 2025
Kynningarfundur vegna fyrirhugaðs samruna
Stjórnir Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands og Frjálsa lífeyrissjóðsins hafa skrifað undir samrunasamning með fyrirvara um samþykki sjóðfélaga Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands.
New temp image
28. okt. 2025
Sjóðfélagafundur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands
Sjóðfélagafundur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands (LTFÍ) verður haldinn fimmtudaginn 13. nóvember 2025 kl. 16.00 í Landsbankanum, Reykjastræti 6.
New temp image
21. okt. 2025
Frjálsi lífeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands sameinast
Stjórnir Frjálsa lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands (LTFÍ) hafa  undirritað samning um að sameina lífeyrissjóðina. Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands sameinast Frjálsa lífeyrissjóðnum, sem stækkar í kjölfarið og tekur yfir öll réttindi og skyldur gagnvart sjóðfélögum LTFÍ. Miðað við 30. september sl. var stærð Frjálsa um 562 milljarðar og stærð LTFÍ um 11 milljarðar.
New temp image
6. maí 2025
Tillögur til breytinga á samþykktum Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands
Á ársfundi Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands sem haldinn verður föstudaginn 9. maí nk. verða meðfylgjandi tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins lagðar fram.
New temp image
5. maí 2025
Meginniðurstöður ársreiknings 2024
Rekstur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands gekk vel á árinu 2024. Ávöxtun eigna sjóðsins á árinu var góð en hrein raunávöxtun beggja deilda sjóðsins var 5,9%. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar s.l. 10 ár er 3,5% í sameignardeild og 3,1% í séreignardeild. Halli  á tryggingafræðilegri stöðu sjóðsins nam 3,8% í árslok 2024.
New temp image
25. apríl 2025
Aðalfundur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands verður föstudaginn 9. maí 2025
Aðalfundur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands verður haldinn föstudaginn 9. maí 2025 kl. 16.00 í Landsbankanum, Reykjastræti 6.
New temp image
8. maí 2024
Meginniðurstöður ársreiknings 2023
Rekstur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands gekk vel á árinu 2023. Ávöxtun á árinu var ágæt miðað við aðstæður á mörkuðum en hrein raunávöxtun séreignardeildar sjóðsins var 0,6% og sameignardeildar 0,5%. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar s.l. 10 ár er 3,2% í sameignardeild og 2,8% í séreignardeild. Halli er á tryggingafræðilegri stöðu sjóðsins sem nemur 5,95%.
New temp image
7. maí 2024
Aðalfundur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands verður föstudaginn 24. maí
Aðalfundur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands verður haldinn föstudaginn 24. maí 2024 kl. 16.00 í Landsbankanum, Reykjastræti 6.
New temp image
15. maí 2023
Aðalfundur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands verður föstudaginn 2. júní
Aðalfundur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands verður haldinn föstudaginn 2. júní 2023 kl. 16.00 í útibúi Landsbankans Austurstræti 11.
New temp image
15. maí 2023
Meginniðurstöður ársreiknings 2022
Rekstur Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands gekk bærilega á árinu 2022. Ávöxtun var slök á árinu og í samræmi við aðstæður á verðbréfamörkuðum.