Nú hafa Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands (LTFÍ) og Frjálsi lífeyrissjóðurinn (Frjálsi) verið sameinaðir að fullu og miðast sameiningin við sl. áramót.
Áunnin réttindi í samtryggingu og uppsöfnuð séreign sjóðfélaga hefur verið flutt í Frjálsa m.v. 31.12.2025 og iðgjöld frá janúar 2026 bókuð í Frjálsa. Lífeyrisþegar fá útgreiðslur úr Frjálsa frá og með apríl. Sjóðfélagar þurfa ekkert að aðhafast vegna sameiningarinnar en nánari upplýsingar um ráðstöfun lífeyrissparnaðar í leiðir og þjónustu Frjálsa má nálgast á vef Frjálsa.









